Það var létt yfir sölufólkinu í Bestfisk-búðinni í dag enda nóg að gera og ekki stóð á góðum ráðleggingum um meðhöndlun og matreiðslu á margskonar fiskiréttum hjá kokki dagsins en hann nefnist Harald Baumann frá Berlín og talar íslenskuna ,,eins og innfæddur´´.Nýju réttirnir bera heitin; Las Vegas, Chilli Lime, Kókos Karry, Karry, Graslaukur Sinnep. Fjöldi manns mætti í dag til að versla fiskrétti og virðist greinilegt að Hornfirðingar vilja taka þátt í átakinu ,,Verum frísk –borðum fisk´´ Að sögn Sívars Árna Scheving framkvæmdarstjóri Bestfisks þá eru réttirnir að vekja gríðarlega mikla lukku og greinilegt að framtak fyrirtækisins með að opna fiskbúð er að virka.
Lesa meira