Ríki Vatnajökuls - Janúar
    <description>Ríki Vatnajökuls</description>
    <ttl>40</ttl>
Opið hús hjá heilsugæslustöðinni
      <description>Í dag tekur starfsfólk heilsugæslustöðvarinnar á móti gestum og gangandi frá kl. 16-18. Tilefnið opna hússins er að gefa fólki kost á að skoða nýju röntgentækin sem stofnunin tók nýverið í notkun en þau voru gefin af einstaklingum, fyrirtækjum og félagasamtökum, ýmsum aðilum í sveitarfélaginu. Frá því að nýju röntgentækin voru tekin í notkun hafa þau þegar sannað gildi sitt og sýnt hversu mikilvægt það er fyrir okkur hér í einu af afskekktasta sveitarfélagi landsins að hafa slík tæki. Einnig verður fólki boðið að skoða fæðingaaðstöðuna og kynnast aðeins starfssemi heilsugæslunnar. Jafnframt þessu býður starfsfólk heilsugæslustöðvarinnar upp á blóðþrýstings og blóðsykurmælingu.</description>
Nýr liður á vefnum
      <description>Hver hefur ekki velt vöngum um hvað varð að hinum og þessum sem bjó áður á Hornafirði en hefur nú flutt hérlendis eða erlendis. Oft er talað um brottflutta Hornfirðingar og þá sérstakalega í samhengi við Þorrablót Hornfirðinga á höfuðborgarsvæðinu. En höldum okkur við þá brottfluttu, við hér á vefnum ætlum nú að taka upp nýjan lið sem við köllum “Hvað varð um?” þar sem ætlunin er að leita til þeirra fjölmörgu  “brottfluttu” sem enn hafa sterkar rætur hér í ríki Vatnajökuls og kanna hvar  þeir eru niðurkomnir í dag og hvað þeir hafa fyrir stafni. Sjáum hvað setur, hver veit nema þessi liður verði jafn vinsæll og “jólagestir” okkar hér á vefnum.</description>
Stjörnuhelgi í Þórbergssetri
      <description>Fyrirhugað er að halda stjörnuhelgi í Þórbergssetri dagana 24.–25. febrúar. Dagskráin er unnin í samvinnu við Snævarr Guðmundsson fjallaleiðsögumann, náttúruunnanda og ljósmyndara. Snævarr kemur með stórt stjörnuver með sér á staðinn og þátttakendur fá að fara inn í verið og fara í ferðalag um himingeiminn undir leiðsögn hans. Einnig verður farið í kvöldgöngu ef að veðrið verður gott og skyggnst um óravíddir himingeimsins. Snævarr ætlar síðan að flytja fræðsluerindi um norðurljósin kl 11:00 á sunnudeginum. Tengja á dagskrána bókmenntum Þórbergs með upplifun og upplestri úr verkum skáldsins. Hámark þátttakenda á Stjörnuhelgi í Þórbergssetri verða 40 manns.</description>
Hásef í Equador
      <description>Hásef er félagsskapur nemenda sem útskrifaðist af Garðyrkjuskóla ríkisins árið 1974. Þessum hóp tilheyra Rannveig Einarsdóttir og Magnús Jónasson. Hásefingar hafa alla tíð síðan haldið hópinn og ferðast saman á hverju ári. Fyrir tveimur árum síðan kom upp sú hugmynd að fara nú í eina almennilega reisu áður en við yrðum of gömul til þess. Stefnan var sett á Galapagoseyjar og send inn pöntun, en fjöldi ferðamanna þangað er takmarkaður og það er a.m.k. eins árs biðlisti. Þetta er langt ferðalag og fyrst við vorum að fara svona langt að heiman var ákveðið að vera í 3 vikur í Equador og koma við í Amazon frumskóginum. Ferðin stóðst í alla staði væntingar og var mjög vel heppnuð. Fjölbreytt náttúrufar og önnur menning en við eigum að venjast.</description>
Hvert einasta atkvæði skiptir gríðarlegu máli
      <description>Eins og fram kom á vefnum hér í gær þá eru þeir feðgar Grétar Örvars og Kristján með lag í undankeppninni á laugardagskvöld, í spjalli við Grétar þá lagði hann áherslu á að hvert einasta atkvæði skiptir gríðarlegu máli í þessum riðli og vildi hann hvetja fólk til að hugsa þetta alla leið og velja það lag sem þeir telja að geti orðið okkur til sóma í Helsinki þ.e.a.s. að við náum nú að komast upp úr milliriðlinum, því nú er tónlistin komin í riðlakeppni. Að sögn Grétars þá vonaði hann að Hornfirðingar hafi trú á laginu "Eldur" og að þáttaka og reynsla hans í þessari keppni sé eitthvað sem fólk treysti á. Grétar segir það ekki gott að vakna upp með einhverja "Eurovision-þynku" líkt og í fyrra þegar annars fyndið atriði (í byrjun) fór gjörsamlega úr böndunum þegar komið var út í keppnina.</description>
Völvuspá fyrir Hornafjörð 2007
      <description>Vefnum hefur borist Völvuspá frá spámanninum Völundi og er hún eftirfarandi:
Rödd unga fólksins kveður sér hljóðs á árinu.Uppfullt af góðum hugmyndum og vill leggja sinn skerf að mörkum til sveitarfélagsins. Margt af þessu unga fólki er vel mentað og sumt af þessu fólki talar af reynslu. Þetta segir okkur það að þetta er rödd fólks sem er nýkomið inn í sveitafélagið og vill hafa sig í frammi. Sveitarfélagið verður að færa sér þessar hugmyndir í nyt, annars notfæra sér önnur sveitarfélög þessar tillögur. Eldingar Þórs eru yfir sveitarfélaginu þetta árið sem þýðir að tími breytinga og áhættu er í lagi og skaðar engan, máttur Mjölnis er mikill.</description>
Tvö lög Hornfirðinga í undanúrslitum Evróvision á laugardagskvöld
      <description>Annar riðill af þremur í beinni útsendingu Söngvakeppni Sjónvarpsins í undanúrslitum fyrir Evróvision fer fram næstkomandi laugardagskvöld og af 8 lögum er tvö lög eftir Hornfirðinga, "Mig dreymdi" eftir Óskar Guðnason , texti eftir Ingólf Steinsson og flutt af Heru Björk Þórhallsdóttur, hitt lagið er "Eldur" sem er eftir þá feðga Grétar Örvarsson og Kristján Grétarsson, texti eftir Ingibjörgu Gunnarsdóttur og það er Friðrik Ómar sem syngur. Þess má geta að Óskar Guðnason átti líka lag í undanúrslunum síðasta laugardag en því miður náði það lag ekki áfram í úrslit. Það eru áhorfendur sem velja í símkosningu þau lög sem komast áfram í lokakeppnina sem verður haldin 17. febrúar n.k. Það kvöld ræðst hvert þeirra laga sem keppa til úrslita verður framlag Íslands í forkeppni Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva, sem fram fer í Helsinki í Finnlandi 10. maí næstkomandi.</description>
      <alt>Kristján Grétarsson</alt>
Mikið hvassviðri í Öræfasveit í morgun
      <description>Mikið hvassviðri hefur verið í austanverðri Öræfasveit í morgun þar sem vindur hefur mælst 40- 50 m/sek í mestu hviðunum og hefur Vegagerðin varað vegfarendur við að ekki sé þar ferðaveður. Ekki er þó kuldanum fyrir að fara því á Kvískerjum mældist hiti 13° í morgun og 14,9° á Fagurhólsmýri kl. 10.00 Samkvæmt nýjustu veðurspá ætti að fara að lægja en spáin er norðvestan og vestan 10-18 m/s, en 25-30 á stöku stað í fyrstu. Hiti 3 til 8 stig.</description>
Von á vatnsfjárfestum í næsta mánuði
      <description>Von er á fulltrúum þeirra aðila sem hafa hug á að kaupa vatn af Hornfirðingum núna í febrúar segir Ari Þorsteinsson hjá Frumkvöðlasetri Austurlands, við erum í viðræðum við þessa aðila og erum að svara fyrirspurnum um þessi mál. Þeir virðast hafa áhuga á þessu og ætla að koma og skoða ákveðna staði hér og möguleikana á að virkja vatnið til útflutnings og fá íslenskan jarðfræðing, sérhæfðan í vatnsmálum og jarðborun til liðs við sig. Þetta eru fjárfestar sem hafa tengsl við dreifingarfyrirtæki og eru að leita möguleika á vatnsnámi og ætla síðan að fá einhvern hóp fjárfesta með sér í verkefnið. Hvað varðar flutning á vatninu héðan til neytenda eru þeir að hugsa um tvo möguleika, annar  er átöppun og hinn er að flytja vatn í tankskipi sem flytti það eitthvað suður á bóginn t.d. til arabalanda. Þessir fjárfestar vilja hafa starfsemina hér og aðstöðuna sem næst Höfn , einhversstaðar þar sem skip geta lagst að.</description>
      <alt>Ari Þorsteinsson</alt>
Flugvélin mun fara í sitt fyrsta áætlunarflug til Hornafjarðar í dag
      <description>Flugvélin mun fara í sitt fyrsta áætlunarflug til Hornafjarðar í dag Eins og kunnugt er orðið tók Flugfélagið Ernir við áætlunarflugi hingað á Hornafjörð um síðustu áramót og þennan stutta tíma sem þeir hafa séð um flugleiðina Höfn-Reykjavík þá er það almannarómur að þeir hafa staðið sig mjög vel. Flugfélagið keypti 19 sæta Jeatstream 32 flugvél sem fljúga mun áætlunarflug á Hornafjörð og Sauðárkrók ásamt leiguflugi innanlands sem utan. Nýja vélin hefur hlotið einkennisstafina TF-ORA. Flugvélin mun fara í sitt fyrsta áætlunarflug sem er hingað á Hornafjörð og er áætlaður lendingartími á Hornafjarðarflugvelli um kl 17:50. Vélin lendir aftur í Reykjavík um kl 19:20. Flugtíminn milli Hafnar og Reykjavíkur í nýju flugvélinni er um 50 mínútur.</description>
      <alt>Flugfélagið Ernir</alt>
Landhelgisgæslan tekur við nýrri björgunarþyrlu á Hornafjarðarflugvelli
      <description>Ný leiguþyrla landhelgisgæslunnar lenti á Hornafjarðarflugvelli uppúr hádeginu í dag. Forstjóri Landhelgisgæslunnar Georg Lárusson ásamt nokkrum starfsmönnum gæslunnar voru þá mættir á staðinn og tóku á móti nýju þyrlunni, Benoný Ásgeirssyni flugstjóra og áhöfn hans. Benóný sagði ferðina hafa gengið eins og best varð á kosið, ferðin frá Vogum í Færeyjum tók 1.1/2 klst. í rjómablíðu. Þyrlan er sérútbúin sem björgunarþyrla og er sviðuð á stærð og TF- SIF og ber einkennisstafina TF-EIR. Að sögn Georgs Lárussonar  átti þyrlan að afhendast 1.okt. sl. svo seinkunin er orðin nokkur á komu hennar en hefur sem betur fer ekki komið að sök að öðru leiti en því að gæslan hefur þurft að nota dýrari vélar í verkefni sem minni vélar hefðu getað sinnt. Þetta er 4. þyrlan sem Landhelgisgæslan hefur til umráða og sú fimmta bætist við í maí nk. og verður hún á af sömu stærð og TF-LÍF sem eru fullkomnustu björgunarþyrlur í heiminum. Georg segir flugþol þeirra vera um 50 mílur á haf út, geta verið þar í ½ klst. og til baka aftur án þess að taka eldsneyti. Verið er að setja búnað í varðskipin Tý og Ægi til að gefa þyrlum eldsneyti á lofti.</description>
Þið vegagerðarmenn hérna eruð algjörar hetjur
      <description>Starfsmenn Vegagerðarinnar fá ósjaldan að heyra það hvað akvegirnir okkar séu vondir, mjóir og allt það. En ætli margir vegfarendur sem aka leiðina um Þvottár- og Hvalnesskriður að ógleymdum Hvaldal sem er sunnan Hvalnesskriða, hafi hugleitt  hvernig það er að halda þessum  akvegi opnum og eins vel akfærum og mögulegt er. Fæstir gera sér grein fyrir hversu hættulegt starf þetta er því oft og tíðum eru þeir sem þarna eru að hreinsa veginn flesta daga ársins í mikilli lífshættu en lán okkar vegfarenda er að þarna eru að verki nánast sömu mennirnir áratugum saman, menn sem vita nákvæmlega hvað gera skal þegar illa viðrar á þessum slóðum. Það er því ekki furða þó undrunarsvipur kæmi á Jón Helgason hjá Vegagerðinni á Höfn, sem unnið hefur í skriðunum í nær aldarfjórðung, þegar ökumaður stansaði hjá honum í skriðunum og  sagði “þið vegagerðarmenn hérna eruð algjörar hetjur og eigið mikið hrós fyrir hvernig þið getið haldið þessum vegi opnum og yfirleitt þorið að vera hér, meira hef ég ekki að segja”  að þessu mæltu kvaddi hann og ók áfram. Þetta var sannarlega rétt og vel mælt og hefur án efa yljað Jóni um hjartaræturnar.</description>
Fjáröflunarferð í Skaftafellssýslur
      <description>Landssamtök blindra í Bretlandi, eða Royal National Institute of the Blind, skipuleggja fjáröflunarferð til Íslands í september á þessu ári eða svo greinir Fréttablaðið frá í dag. Þar kemur einnig fram að þátttakendur að utan munu ferðast fótgangandi um Skaftafellssýslur, en til þess að komast í ferðina verða þeir fyrst að afla því sem nemur um 280.000 krónum, sem renna til samtakanna. Gönguferðin sjálf tekur fjóra daga, með viðkomu í Skaftafelli, við Breiðamerkurlón, við Kvíárjökul og á Ingólfshöfða, þar sem ferðabóndinn Sigurður Bjarnason á Hofsnesi mun væntanlega leiðbeina hópnum um höfðann. Samkvæmt heimasíðu samtakanna er miðað við að hver gönguhópur samanstandi af um sextíu manns.</description>
Þorra fagnað í Hafnarskóla
      <description>Strákarnir í Hafnarskóla buðu þorra í garð með því að hlaupa hér nokkra hringi í kringum skólann á öðrum fæti, berlæraðir og berfættir. Nokkrir drengir voru einungis á brókinni og létu það ekki aftra sér þó að frostið væri mikið. Þeir sem hlupu flesta hringi fóru 42 hringi í skóm og þeir sem komust næst því fóru 39. Flestir létu sér þó nægja að fara 3 hringi. Rétt fyrir hádegi ætlum við svo að hittast á sal og syngja saman þorralög og 4.H ætlar að vera með skemmtiatriði.</description>
      <alt>Þorra fagnað í Hafnarskóla</alt>
Bónus leitar að verslunarhúsnæði á Höfn
      <description>Í nýjasta fasteignablaði sem fylgir með Fréttablaðinu í dag auglýsir Bónus eftir verslunarhúsnæði á Höfn. Þar kemur fram að húsnæðið þarf að vera allt að 1000 fermetrar að stærð ásamt góðum bílastæðum. Óskar Bónus eftir því að þeir sem hafa áhuga sendi tilboð á skrifstofu Bónuss að Skútuvogi 13 fyrir 5. febrúar n.k. Mikil óvissa hefur verið í matvöruverslunarmálum hér í Sveitarfélaginu undanfarið en eftir að ljóst var að opnuð yrði ný Nettó verslun í Miðbæ önduðu margir léttar.</description>
Samkomulag um að kaupa innréttingar 11-11 í Miðbæ
      <description>Náðst hefur samkomulag milli Samkaupa Suðurnesja-Nettó og Kaupáss um að Samkaup- Nettó kaupi allar innréttingar í 11-11 versluninni í Miðbæ. Það er búið að leysa þetta mál milli fyrirtækjanna sagði Sturla Eðvarðsson hjá Samkaupum og það er fyrir mestu að íbúar á Hornafirði séu öruggir með matvöruverslun. Við tökum við húsinu fyrsta mars og reynum að opna þarna sem fyrst  með eins litlum breytingum og hægt er til að byrja með, svo komum við til með að skoða stöðuna í rólegheitum og fara yfir hana og þá væntanlega gera stærri breytingar seinna á árinu. Við lágmörkum eins og hægt er þann tíma sem kannski verði lokað við skiptin og á meðan munum við sjá um að fólk geti fengið matvöru.</description>
Metaðsókn í nám við FAS
      <description>Núna er innritun í FAS fyrir vorönnina lokið. Það er orðið ljóst að aldrei hafa fleiri verið skráðir í nám við FAS. Alls eru skráðir 316 nemendur í skólann. Fjarnemendur eru um 190 og hafa aldrei verið fleiri. Flestir eru skráðir í 30 tonna réttindanám eða 68. Fjarnemendur frá ME og VA eru 47. Á sjúkraliðabraut sem er sameiginlegt verkefni framhaldsskólanna á Austurlandi eru 33 nemendur. Aðrir fjarnemendur eru 38 sem flestir stunda nám á stúdentsbrautum. Nemendur sem mæta reglulega í tíma eru oft kallaðir staðnemendur og eru þeir um 130. Þar af eru 19 skráðir í vélstjórnarnám. Óvenju hátt hlutfall nemenda sem stefnir að stúdentsprófi er á náttúrufræðibraut eða 57% staðnemenda, en siðustu árin hefur félagsfræðabrautin verið vinsælust.</description>
Hagvöxtur á heimaslóð
      <description>Ferðaþjónustuaðilar í Hornafirði ásamt lykilfyrirtækjum í atvinnuþróun taka í vetur þátt í  námskeiði sem heitir Hagvöxtur á heimaslóð. Námskeiðinu sem er skipulagt af Útflutningsráði er skipt í fjögur tveggja daga námskeið með nokkru millibili og er það síðasta í lok mars. Námskeiðið  verður tvisvar  á Þórbergssetri, það fyrra var núna í vikunni,  og hinir staðirnir eru Hótel Höfn og Árnanes. Skráðir þátttakendur eru 20 ferðaþjónustuaðilar allsstaðar að af svæðinu.  Þetta gengur ljómandi vel hjá okkur segir Þorbjörg  Arnórsdóttir á Hala, þátttakendur fá fræðslu og hjálp við markaðssetningu og vöruþróun innan síns fyrirtækis einnig er fjallað um samvinnu og hvernig okkur tekst að efla samstöðu og auka vinnuframboð ferðaþjónustuaðila á svæðinu. Einnig er þetta líka liður í að skapa tengingu við t.d. Háskólasetrið, Frumkvöðlasetrið, Menningarmiðstöðina og þessa staði sem skipta máli með uppbyggingu svæðisins í heild  og ferðaþjónustu sem atvinnugreinar.</description>
      <alt>Hagvöxtur á heimaslóð</alt>
Blómahaf á Bóndadaginn í Blóm & Bróderí
      <description>Systurnar  og blómakonurnar Hafdís og Gunnhildur eiga heiður og þakkir skyldar fyrir þá framtakssemi að opna blómasölu með meiru þegar útlit var fyrir að Hornfirðingar yrðu að hætta að kaupa blóm og tilheyrandi skreytingar þegar blómabúðin á staðnum lokaði og hætti. En sem sagt þessar elskur ætla að sjá til þess að allar eiginkonur í Hornafirði og nágrenni geti keypt blóm í dag Bóndadaginn því búðin þeirra Blóm & Broderí á Víkurbraut 5 er full af nýjum afskornum blómum.  Að sögn þeirra systra er mikið blómafólk hér í Sveitarfélaginu og nokkuð víst að margar konur hér munu færa mönnum sínum blóm að gjöf í tilefni Bóndadagsins. Þá bjóða þær líka til sölu svuntur sem eru merktar með þeim texta sem hver og ein kona vill að standi á svuntunni, enda leynast víða duglegir menn við eldhússtörfin. Í tilefni Bóndadagsins verður opið hjá þeim frá kl.13-18.</description>
      <alt>Blóm & Bróderí</alt>
Hefur samið um smíði á nýjum Víking bát
      <description>Útgerðarfélagið Nóna ehf  hefur samið um smíði á nýjum Víking bát sem kemur í stað Ragnars Sf 550. Nýi báturinn er mun stærri en Ragnar og  fullkomnari segir eigandinn Arnar Ragnarsson, og því tímabært að endurnýja. Nýi báturinn er Víkingur 1200 smíðaður hjá Samtaki í Hafnarfirði, yfirbyggður eins og Ragnar, 11,94 m langur, og 4,2 m breiður. Þessi nýi verður 40 cm breiðari en Ragnar, 40 cm hærri,70 cm lengri og gengur 24 mílur en Ragnar gengur 12 mílur. Burðargeta nýja bátsins er 13 tonn í körum  en Ragnar tekur 7 tonn í körum.  Línukerfi er fyrir 22  þús. króka  á móti 15 þús. króka línu í Ragnari. Verð á nýja bátnum er 70 mkr og verður hann tilbúinn til afhendingar í sept. nk. Arnar segir mikinn mun að hafa bátinn svona yfirbyggðan og hann henti  á allan hátt mjög vel til útgerðar hér. Ragnar Sf 550 er til sölu og flyst Ragnars-nafnið yfir á nýja bátinn sem verður  þriðji bátur Arnars með nafni föður hans.</description>
Námskeið fyrir konur um stofnun og rekstur fyrirtækja haldið í Nýheimum
      <description>Impra nýsköpunarmiðstöð gengst nú í áttunda sinn fyrir svokölluðum Brautargengisnámskeiðum á landsbyggðinni og verður eitt slíkt haldið í Nýheimum og hefst það helgina 10.-11. febrúar n.k  Eftir það verður kennt einu sinni í viku, á miðvikudögum, kl. 12:30-17:00, frá febrúar og fram í maí (alls 14 skipti). Mjög mikilvægur þáttur í námskeiðsskipulaginu er að þátttakendur hafa aðgang að leiðbeinanda á staðnum milli kennslustunda. Á námskeiðinu mun Rannveig Einarsdóttir taka þetta hlutverk að sér. Námskeiðin eru skipulögð í samvinnu við ýmsa aðila í Sveitarfélaginu m.a. Ara Þorsteins í Frumkvöðlasetrinu og Ragnhildi Jóns í Þekkingarneti Austurlands.</description>
      <alt>Rannveig Einarsdóttir</alt>
40 nýir Austur-Skaftfellingar fæddust á síðasta ári
      <description>Árið 2006 fæddust 40 nýir Austur-Skaftfellingar og þar af voru einir tvíburar, jöfn skipting milli kynja. Áslaug Valsdóttir ljósmóðir segir að þar af hafi 20 konur fætt hér heima, hinar fóru til Reykjavíkur. Konur geta valið um hvort þær vilji fæða heima hjá sér eða á hjúkrunarheimilinu og  hafa nokkrar kosið að fæða heima og þá er þetta bara eins og hér áður fyrr, ég fer heim til þeirra þegar komið er að fæðingu tek á móti barninu og móðir og barn fá síðan sömu umönnun og þær sem fæða á fæðingarheimilum. Þetta er metár í fæðingum hér miðað við nokkur síðustu ár segir Áslaug, en ekkert miðað við það sem var hér áður fyrr. Von er á fyrsta nýja Hornfirðingnum  á þessu ári einhvern næsta dag.</description>
Skrifað undir verksamning um styrkingu og hækkun garða vestan við Skeiðará
      <description>Alls bárust 13 tilboð í gerð og styrkingu varnargarða vestan Skeiðarár. Í gær var skrifað undir verksamning við Héraðsverk ehf  sem átti lægsta tilboðið kr. 52.927.465. sem er 62.7 % af áætluðum kostnaði  kr. 84.391.700.  Verkið felst í því að styrkja og hækka garða sem eru vestan við Skeiðará og varna því að áin flytji sig vestar á sandinn og flæði þar yfir þjóðveginn. Stöðugt eftirlit þurfti með görðunum  síðast liðið sumar og aðgerðir til að halda ánni í skefjum. Lengd garðanna er 2.400 m, fylling í garðana 25.200 rúmmetrar og grjótvörn 23.900 rúmmetrar.</description>
Stella hefur lokið verkefninu SPA svo nú er boltinn hjá heimamönnum
      <description>Um síðustu helgi kynnti Stella Sigfúsdóttir markaðs-og ferðamálafræðingur niðurstöður fýsileikakönnunar á því að reisa heilsulind í ríki Vatnajökuls og hvort SPA Vatnajökull- heilsulind sé áhugaverð og tekjuskapandi nýsköpun í atvinnulífi í ríki Vatnajökuls. Sigurlaug Gissurardóttir formaður FASK stóð að fundinum ásamt Stellu og sagði hún að mjög góð mæting hefði verið á fundinum bætti við ,,mér fannst svona jákvæður andi svífa þar í húsinu´´. Það er engin spurning um að þarna var verið að kynna áhugaverðan kost fyrir svæðið hér og fyrir áhugasama að þróa þetta áfram. Stella hefur lokið þessu verkefni hjá SPA og skilað því af sér svo nú er boltinn  hjá heimamönnum að þróa hugmyndina áfram  og verður nánar sagt frá þessu áhugaverða verkefni í næstu viku.</description>
      <alt>Stella Sigfúsdóttir</alt>
Netto opnar í Miðbæ og fasteignafélag í eigu Kaupfélags Suðurnesja kaupir húseignir á Höfn
      <description>Við höfum náð samkomulagi við KHB um að taka yfir verslunarrekstur í Miðbæ á Hornafirð og fasteignafélag í eigu Kaupfélags Suðurnesja kaupir húseignirnar Miðbæ, verslunarhúsið á Vesturbraut og húsið á Hafnarbraut 30 þar sem Jöklasýningin er til húsa sagði Sturla Eðvarðsson hjá Samkaupum þegar fréttamaður vefsins spurði hann um stöðu verslunarmála hér. Áður var áformað að KHB á Egilsstöðum opnaði Samkaup–úrval á Höfn en við mátum það þannig að meiri sátt yrði um lágvöruverðsverslun á staðnum. Okkar áform var að opna verslun 28. febrúar þegar leigusamningur við Kaupás rennur út en eins og staðan er núna þá fáum við ekki afhent rýmið fyrr en 28. febrúar. Kaupás tekur allar sínar innréttingar og öll tæki burtu og verður líklega farið í að rífa það niður um næstu mánaðarmót. Fyrsta mars eða strax og við komumst inn verður farið að lagfæra húsnæðið og vonandi tekur það ekki nema um hálfan mánuð  þar til við getum opnað þarna glæsilega verslun.</description>
Fróðlegir veðurpunktar frá Veðurstofunni
      <description>Veðurfar skiptir okkur öll miklu og sagt er að það sé algengasta umræðuefni íslendinga og því væri fróðlegt að skoða nokkra veðurpunkta frá Veðurstofu Íslands frá síðasta ári. Janúar 2006 var lengst af hlýr en nokkuð votviðrasamur sunnan og vestanlands. Mestur hiti mældist á Seyðisfirði þ.4., 15,4 stig. Kuldakast  kom nokkra daga um miðjan mánuðinn og mældist þá mest frost á landinu á Veiðivatnahrauni, 23,2 stig þ.17. Þetta var hlýjasti janúar frá 1996. Meðalhiti á Akureyri var 1,8 stig og er það 4 stigum ofan meðallag. Í Akurnesi var meðalhitinn 2,2 stig. Úrkoma í Akurnesi mældist 266 mm.  Febrúar var mjög hlýr á landinu og hiti yfir meðallagi  Í Akurnesi var meðalhiti 3,1 stig, nánast sami og 2003 og  úrkoma þar mældist 104mm. Lægsti hiti í mánuðinum mældist á Brúarjökli þ.8, -25,8 stig, en hæstur varð hitinn á Seyðisfirði 16,2 stig að kvöldi þ.21.</description>
Bjarni Sveinsson í heimahöfn
      <description>Bjarni Sveinsson ÞH 322  sem er í eigu Skinneyjar Þinganess kom til sinnar heimahafnar  Hornafjarðar í gærkvöldi  en skipið hefur legið á Húsavík  síðan núverandi eigendur þess keyptu útgerðarfélagið Langanes hf á Húsavík sem átti skipin Bjarna Sveinsson og Björgu Jónsdóttur sem nú heitir Krossey SF 20. Ingólfur Ásgrímsson sem sótti skipið og segir þetta vera ágætis bát, eins og hann orðaði það. Hann sagði óákveðið um útgerð á Bjarna  og að hann væri á söluskrá.</description>
      <alt>Bjarni Sveinsson ÞH 322</alt>
Geðheilbrigðissamningur undirritaður
      <description>Samningur um geðheilbrigðisþjónustu við börn og unglinga var undirritaður í morgun við Heilbrigðisstofnun Suðausturlands á Höfn í Hornafirði. Siv Friðleifsdóttir, heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra, skrifaði undir samninginn fyrir hönd ráðuneytisins og Guðrún Júlía Jónsdóttir, framkvæmdastjóri, fyrir hönd heilbrigðisstofnunarinnar. Samkvæmt þessum samningi fær Heilbrigðisstofnun Suðausturlands eina milljón kr. á ári í tvö ár sem notað verður til að efla geðheilbrigðisþjónustu við börn og ungmenni  í sveitarfélaginu. Í samningnum er miðað við að efla heilsugæsluna sem fyrsta viðkomustað í heilbrigðisþjónustunni og að börn og ungmenni með  geð- og hegðunarröskun og forráðamenn þeirra eigi þess kost að leita sér aðstoðar í grunnþjónustunni.</description>
Flugfélag Íslands hélt Vigni kveðjusamsæti eftir 40 ára starf
      <description>Þann 1. janúar síðast liðinn urðu þáttaskil hjá  Vigni Þorbjörnssyni umdæmisstjóra á Hornafjarðarflugvelli þegar hann lét af störfum sem umdæmisstjóri hjá Flugfélagi Íslands og hélt Flugfélagið honum og Ragnhildi Eymundsdóttur konu hans veglegt kveðjusamsæti sl. föstudag og kom fjölmennt lið samstarfsmanna þeirra frá Flugfélaginu til að þakka þeim hjónum samstarfið. Alls komu til hófsins um 150 manns, þar af komu 37 með Fokker frá Reykjavík. Vignir hefur starfað hjá Flugfélaginu í rúm 40 ár og reyndar gott betur því strax um tíu ára aldurinn var hann farinn að hjálpa foreldrum sínum í flugafgreiðslunni á Hafnarbrautinni. Þetta var bara svona í þá daga sagði Vignir, fjölskyldan hjálpaðist að við það sem gera þurfti og ég hélt svo áfram við þetta þegar bræður mínir fóru til annarra starfa.</description>
Best-Fiskur bauð uppá humarsúpu á Þrettándanum
      <description>Best-Fiskur fagnaði þrettánda dag jóla með því að bjóða uppá gómsæta humarsúpu og brauð frá kl.11-15 í matsal fyrirtækisins.Góð tilbreyting eftir allt kjötátið um hátíðarnar og fólk kunni greinilega vel að meta þessa nýbreytni og var hvert sæti í salnum setið þegar fréttamaður vefsins leit þar inn. Meðal þeirra sem þar voru var þorrablótsnefndin 2007 og gaf  hún kokkunum þeim Sívari Árna framkvæmdastjóra og Guðjóni Magnússyni aðstoðarmanni hans góð meðmæli fyrir súpuna og framtakið, sögðu þetta frábært og  höfðu orð á að hér væri ýmislegt sem þorrablótsnefnd gæti nýtt sér, hvað svo sem það nú þýðir. Um 150 manns komu í humarsúpuna svo að nóg var að gera hjá matreiðslumönnunum í Best-Fiski en þeim til halds og trausts við matreiðsluna var Gísli Már Vilhjálmsson á Hótel Höfn.</description>