Janúar
Heimsókn heilbrigðisráðherra
Heimsókn heilbrigðisráðherra
Heilbrigðisráðherra Sif Friðleifsdóttir skoðar nýju röntgentækin þegar hún heimsótti Heilbrigðisstofun (úr myndasafni).

31.01.2007 Janúar

Opið hús hjá heilsugæslustöðinni

Í dag tekur starfsfólk heilsugæslustöðvarinnar á móti gestum og gangandi frá kl. 16-18. Tilefnið opna hússins er að gefa fólki kost á að skoða nýju röntgentækin sem stofnunin tók nýverið í notkun en þau voru gefin af einstaklingum, fyrirtækjum og félagasamtökum, ýmsum aðilum í sveitarfélaginu. Frá því að nýju röntgentækin voru tekin í notkun hafa þau þegar sannað gildi sitt og sýnt hversu mikilvægt það er fyrir okkur hér í einu af afskekktasta sveitarfélagi landsins að hafa slík tæki. Einnig verður fólki boðið að skoða fæðingaaðstöðuna og kynnast aðeins starfssemi heilsugæslunnar. Jafnframt þessu býður starfsfólk heilsugæslustöðvarinnar upp á blóðþrýstings og blóðsykurmælingu.

Þess þarf varla að geta að allir eru velkomnir.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica