Janúar
Sólroði
Sólroði
Sólroði (@Þórbergssetur)
Mynd 1 af 2
1 2

29.01.2007 Janúar

Stjörnuhelgi í Þórbergssetri

Fyrirhugað er að halda stjörnuhelgi í Þórbergssetri dagana 24.-25. febrúar. Dagskráin er unnin í samvinnu við Snævarr Guðmundsson fjallaleiðsögumann, náttúruunnanda og ljósmyndara. Snævarr kemur með stórt stjörnuver með sér á staðinn og þátttakendur fá að fara inn í verið og fara í ferðalag um himingeiminn undir leiðsögn hans. Einnig verður farið í kvöldgöngu ef að veðrið verður gott og skyggnst um óravíddir himingeimsins. Snævarr ætlar síðan að flytja fræðsluerindi um norðurljósin kl 11:00 á sunnudeginum. Tengja á dagskrána bókmenntum Þórbergs með upplifun og upplestri úr verkum skáldsins. Hámark þátttakenda á Stjörnuhelgi í Þórbergssetri verða 40 manns.


Dagskrá stjörnuhelgi er eftirfarandi:

24. febrúar
14:00 Setning Þorbjörg Arnórsdóttir Þórbergssetri
14:20 Erindi um stjörnur: Snævarr Guðmundsson fjallaleiðsögumaður
15:00 Vökustemmning í fjósbaðstofunni á Hala
15:40 Kaffiveitingar
16:00 Heimsókn í stjörnuver: Snævarr Guðmundsson
17:00 Heimsókn í Bergshús, Siríus skoðaður
19:30 Hátíðarkvöldverður
20:30 Gönguferð, horft til himins og notið útiveru, hlustað á veraldarhafið
21:00 Samvera í Þórbergssetri, komið við á ,,strandi"


25 febrúar
10:00 Morgunverður
11.00 Erindi um Norðurljós
12:00 Hádegisverður
13:00 Gönguferð um umhverfið, farið upp að Steinum, frjáls dagur hagað eftir veðri og vindi
15:00 Formlegri dagskrá lokið

Hér er um afar áhugavert efni að ræða. Áhugasömum er bent á heimasíðu Snævarrs www.snaevarr.com og bókina Stjörnuatlas, eftir Snævarr Guðmundsson. Einnig heimasíðu Þórbergsseturs www.thorbergur.is
Dagskráin verður nánar auglýst síðar

Hægt er tilkynna þátttöku á netfangið thorbergssetur@simnet.is eða í síma 8672900

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica