Hásef í Equador
Hásef er félagsskapur nemenda sem útskrifaðist af Garðyrkjuskóla ríkisins árið 1974. Þessum hóp tilheyra Rannveig Einarsdóttir og Magnús Jónasson. Hásefingar hafa alla tíð síðan haldið hópinn og ferðast saman á hverju ári. Fyrir tveimur árum síðan kom upp sú hugmynd að fara nú í eina almennilega reisu áður en við yrðum of gömul til þess. Stefnan var sett á Galapagoseyjar og send inn pöntun, en fjöldi ferðamanna þangað er takmarkaður og það er a.m.k. eins árs biðlisti. Þetta er langt ferðalag og fyrst við vorum að fara svona langt að heiman var ákveðið að vera í 3 vikur í Equador og koma við í Amazon frumskóginum. Ferðin stóðst í alla staði væntingar og var mjög vel heppnuð. Fjölbreytt náttúrufar og önnur menning en við eigum að venjast.
Það er gaman að kynnast því hvernig fólk í öðrum heimshlutum býr, en þegar öllu er á botninn hvolft þá erum við öll býsna lík, hvar í heiminum sem að við búum.
Næstkomandi miðvikudagskvöld (31.jan.) mun Rannveig verða með fyrirlestur og myndasýningu á Jöklasýningu úr ferð þeirra Hástefinga til Equador. Fyrirlesturinn og sýningin hefst kl. 20 Aðgangur er ókeypis og allir eru velkomnir




Skrifa athugasemd