Janúar
Feðgarnir Kristján og Grétar Örvars
Feðgarnir Kristján og Grétar Örvars
Feðgarnir Kristján og Grétar

26.01.2007 Janúar

Hvert einasta atkvæði skiptir gríðarlegu máli

Eins og fram kom á vefnum hér í gær þá eru þeir feðgar Grétar Örvars og Kristján með lag í undankeppninni á laugardagskvöld, í spjalli við Grétar þá lagði hann áherslu á að hvert einasta atkvæði skiptir gríðarlegu máli í þessum riðli og vildi hann hvetja fólk til að hugsa þetta alla leið og velja það lag sem þeir telja að geti orðið okkur til sóma í Helsinki þ.e.a.s. að við náum nú að komast upp úr milliriðlinum, því nú er tónlistin komin í riðlakeppni. Að sögn Grétars þá vonaði hann að Hornfirðingar hafi trú á laginu "Eldur" og að þáttaka og reynsla hans í þessari keppni sé eitthvað sem fólk treysti á. Grétar segir það ekki gott að vakna upp með einhverja "Eurovision-þynku" líkt og í fyrra þegar annars fyndið atriði (í byrjun) fór gjörsamlega úr böndunum þegar komið var út í keppnina.

Að hans mati hefði Regína Ósk átt að keppa fyrir Ísland í fyrra.
Nú er komið að ríki Vatnajökuls og stórbyggðarlaginu Höfn að sýna sig og sanna með því styðja dyggilega sem fyrr við sína menn.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica