Janúar
Volundur2007
Volundur2007
Volundur2007

26.01.2007 Janúar

Völvuspá fyrir Hornafjörð 2007

Vefnum hefur borist Völvuspá frá spámanninum Völundi og er hún eftirfarandi:

Rödd unga fólksins kveður sér hljóðs á árinu. Uppfullt af góðum hugmyndum og vill leggja sinn skerf að mörkum til sveitarfélagsins. Margt af þessu unga fólki er vel mentað og sumt af þessu fólki talar af reynslu. Þetta segir okkur það að þetta er rödd fólks sem er nýkomið inn í sveitafélagið og vill hafa sig í frammi. Sveitarfélagið verður að færa sér þessar hugmyndir í nyt, annars notfæra sér önnur sveitarfélög þessar tillögur. Eldingar Þórs eru yfir sveitarfélaginu þetta árið sem þýðir að tími breytinga og áhættu er í lagi og skaðar engan, máttur Mjölnis er mikill.

Snemma árs fara að heyrast frábærar hugmyndir frá ungu athafnafólki. Sennilega eru hugmyndirnar tengdar uppbyggingu sveitarfélagsins en því miður fá hugmyndirnar ekki nægilega góðan hljómgrunn og kæfðar niður af íhaldssemi gamalreyndra athafnarmanna en munum það að unga fólkið á að erfa landið. Hugmyndir þessar hjá unga fólkinu tengjast listinni og ferðamannaiðnaði.

Með vordögum kemur hið gullna tækifæri sem Völundur sér í vændum tengt hinum góðu hugmyndum frá unga fólkinu til sveitarfélagsins.
Ef við köfum dýpra í hugmyndabankann hjá unga fólkinu þá uppvísist það hér með, að þetta tengist trúnni ,ástríki og heiðarleika. Hvað vilja menn hafa það betra.

Færið ykkur þetta í nyt er þar að kemur, gerið áform. Hlustið á rödd unga fólksins.
Annað og meira, auðurinn verður ykkar og jafnframt sveitarfélagsins.
Auðurinn í þessu tilfelli er ekki bara peningar, nei svo sannarlega miklu dýrmætara en það.
Völundur sér að um sumarið eiga Hornfirðingar von á miklu hnossi frá valdamiklum athafna og hugsjónar manni. Takið eftir, hann á svo sannarlega eftir að fá augastað á þessari snjöllu hugmynd (sem mun þá greinilega verða skoðuð hjá unga fólkinu) hjá Hornfirðingum og þessi maður á eftir að leggja mikið fé í þessa hugmynd sem verður greinilega að framkvæmd og á eftir að styðja vel við hana.
Ekki veit Völundur hver maðurinn er, eða hverju eða hverjum hann er tengdur. Enn takið eftir þessu þegar þar að kemur.
Sumarið hjá Hornfirðingum á eftir að verða áhyggjulítið og hlýtt. Það er ágætt að sumarið skuli verða svona afslappað, því að haustmánuðirnir eiga eftir að verða annríkir í formi vinnu og miklu athafnarlífi.

Völundur sér að sveitarfélagið virðist vera með eitthvað gott á prjónunum til þeirra sem minna hafa af peningum á milli handanna en þessir sem efnaðri eru, en gætið að sveitastjórnarmenn að lofa ekki um og of upp í ermarnar á ykkur sem þið getið ekki staðið við. Það gerir fólk óánægt. Þá er betra að þegja en að segja.

Góðar fréttir til þeirra sem eiga húseignir á Höfn, því fasteignarverð virðist fara hækkandi er nær dregur næstu áramótum og það sem meira er, gósentíð framundan hjá Hornfirðingum þar í framhaldi.
Til unga fólksins: Kapp er best með forsjá.
Til eldra fólksins: að æ skelfur gamall þó yfir glæðum sitji

Svona meira til gamans, smá Völundarspá fyrir landið.

Kosningar:
Sannfæringakrafturinn hjá og frá öllum flokkum á eftir að vera mikill. Þeir eru allir með svör á reiðum höndum á vanda íslendinga og lausnir við þeim. Frábært, en eins og alltaf fyrir kosningar, loforð. Það virðist samt ganga best í landann þeir flokkar sem tala af fenginni reynslu. Þannig að Völundur spáir því að gamla stjórnin fær að sitja áfram kannski þó með smá breytingum.

Landkönnun á eftir að ganga best í þessari kosningabaráttu, í landann (hala inn atkvæði) Þá á Völundur við að sá stjórnmálaflokkur sem berst fyrir víðreisn (vill fara í víking) opna betur umheiminn fyrir íslendingum og opna betur Ísland fyrir umheiminum.
Megi þeir bestu vinna.

Tónlist:
Eftir töluvert þrátt og þref verður tekin sú ákvörðun að halda stóra rokktónleika á Íslandi. Með mörgu frægu erlendu og íslensku listafólki. Karpið var um hvar á landinu tónleikarnir ættu að fara fram. Skyldi þó ekki vera að okkar ástkæri Magni væri með hendurnar í þessu máli?

Baráttan gegn bílslysum:
Baráttan og áróðurinn gegn bílslysum á eftir að vera í algleymingi þetta árið enda hið besta mál.
Ef við hugsum okkur áróðurinn í þessu máli sem spjót, þá vitum við það að drifið að markinu felst í markmiði, kraftmiklu kasti og hnitmiðaðri stefnu. Ef þetta vantar verður kastið afllaust og nær aldrei marki.
Sofnum aldrei á verðinum minnum okkur stanslaust á hætturnar í umferðinni.

Smá frétt:
Kunnur íslenskur athafnarmaður á eftir að hverfa af sjónarsviðinu á þessu ári með snöggum hætti.

Náttúran:
Katla mun sennilega ekki gjósa í ár en það ólgar þar niðri,en það fer nú samt að styttast í eldgos en ekki hjá og frá Kötlu.

Að lokum óskar Völundur Hornfirðingum öllum, gleðilegs árs og gæfuríkrar komandi framtíðar.
Kveðja Völundur.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica