Tvö lög Hornfirðinga í undanúrslitum Evróvision á laugardagskvöld
Annar riðill af þremur í beinni útsendingu Söngvakeppni Sjónvarpsins í undanúrslitum fyrir Evróvision fer fram næstkomandi laugardagskvöld og af 8 lögum er tvö lög eftir Hornfirðinga, "Mig dreymdi" eftir Óskar Guðnason , texti eftir Ingólf Steinsson og flutt af Heru Björk Þórhallsdóttur, hitt lagið er "Eldur" sem er eftir þá feðga Grétar Örvarsson og Kristján Grétarsson, texti eftir Ingibjörgu Gunnarsdóttur og það er Friðrik Ómar sem syngur. Þess má geta að Óskar Guðnason átti líka lag í undanúrslunum síðasta laugardag en því miður náði það lag ekki áfram í úrslit. Það eru áhorfendur sem velja í símkosningu þau lög sem komast áfram í lokakeppnina sem verður haldin 17. febrúar n.k. Það kvöld ræðst hvert þeirra laga sem keppa til úrslita verður framlag Íslands í forkeppni Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva, sem fram fer í Helsinki í Finnlandi 10. maí næstkomandi.
Það er því nokkuð ljóst að margir Hornfirðingar eiga stefnumót við símakosningu á laugardagskvöldið.
Hlusta á lagið Mig dreymdi
Hlusta á lagið "Eldur"
Leiðbeiningar um símakosninguna
Eftir að símakosning er hafin gefast um 35 mínútur til þess að kjósa.
Einungis þau atkvæði sem greidd eru innan tímarammans eru gild.
Eitt atkvæði er gefið ef hringt er eða sent sms í viðkomandi símanúmer. Enginn texti þarf að fylgja sms skilaboðum.
Ekki er hægt að hringja úr númerum sem lokuð eru fyrir hringingar í símatorg.
Heimilt er kjósa fimm sinnum úr hverju símanúmeri en gjaldfært er fyrir öll símtöl.
Hvert símtal/SMS kostar 99,- kr.





Skrifa athugasemd