Janúar
Flugfélagið Ernir
Flugfélagið Ernir
Hörður Guðmundsson eigandi Flugfélagsins Ernis fyrir framan nýju flugvélina. (@Ernir)
Mynd 1 af 3
1 2 3

24.01.2007 Janúar

Flugvélin mun fara í sitt fyrsta áætlunarflug til Hornafjarðar í dag

Flugvélin mun fara í sitt fyrsta áætlunarflug til Hornafjarðar í dag Eins og kunnugt er orðið tók Flugfélagið Ernir við áætlunarflugi hingað á Hornafjörð um síðustu áramót og þennan stutta tíma sem þeir hafa séð um flugleiðina Höfn-Reykjavík þá er það almannarómur að þeir hafa staðið sig mjög vel. Flugfélagið keypti 19 sæta Jeatstream 32 flugvél sem fljúga mun áætlunarflug á Hornafjörð og Sauðárkrók ásamt leiguflugi innanlands sem utan. Nýja vélin hefur hlotið einkennisstafina TF-ORA. Flugvélin mun fara í sitt fyrsta áætlunarflug sem er hingað á Hornafjörð og er áætlaður lendingartími á Hornafjarðarflugvelli um kl 17:50. Vélin lendir aftur í Reykjavík um kl 19:20. Flugtíminn milli Hafnar og Reykjavíkur í nýju flugvélinni er um 50 mínútur.

Að sögn Ásgeirs Arnar Þorsteinssonar sölu- og markaðsstjóra hjá flugfélaginu þá voru þeir að ráða til sín 5 nýja flugmenn og eru því samtals flugmenn 11 hjá félaginu en þar vinna samtals 17 manns.

Hægt er að nálgast flugáætlun hér á vefnum (sjá flugáætlun).

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica