Janúar
Landhelgisþyrlur á Hornafirði
Landhelgisþyrlur á Hornafirði
Georg Lárusson býður Benóný Ásgrímsson flugstjóra velkominn.
Mynd 1 af 4
1 2 3 4

24.01.2007 Janúar

Landhelgisgæslan tekur við nýrri björgunarþyrlu á Hornafjarðarflugvelli

Ný leiguþyrla landhelgisgæslunnar lenti á Hornafjarðarflugvelli uppúr hádeginu í dag. Forstjóri Landhelgisgæslunnar Georg Lárusson ásamt nokkrum starfsmönnum gæslunnar voru þá mættir á staðinn og tóku á móti nýju þyrlunni, Benoný Ásgeirssyni flugstjóra og áhöfn hans. Benóný sagði ferðina hafa gengið eins og best varð á kosið, ferðin frá Vogum í Færeyjum tók 1½ klst. í rjómablíðu. Þyrlan er sér útbúin sem björgunarþyrla og er sviðuð á stærð og TF- SIF og ber einkennisstafina TF-EIR. Að sögn Georgs Lárussonar átti þyrlan að afhendast 1. okt. sl. svo seinkunin er orðin nokkur á komu hennar en hefur sem betur fer ekki komið að sök að öðru leiti en því að gæslan hefur þurft að nota dýrari vélar í verkefni sem minni vélar hefðu getað sinnt. Þetta er 4. þyrlan sem Landhelgisgæslan hefur til umráða og sú fimmta bætist við í maí nk. og verður hún á af sömu stærð og TF-LÍF sem eru fullkomnustu björgunarþyrlur í heiminum. Georg segir flugþol þeirra vera um 50 mílur á haf út, geta verið þar í ½ klst. og til baka aftur án þess að taka eldsneyti. Verið er að setja búnað í varðskipin Tý og Ægi til að gefa þyrlum eldsneyti á lofti.

Við verðum vel settir með fimm þyrlur og stefnum á meiri samvinnu við Dani í björgunarmálum segir Georg, við höfum haft mikla og góða samvinnu við þá í mörg ár og nú er búið að undirrita viðbótarsamning við þann sem nú er í gildi milli Dana og Íslendinga og með honum er gert ráð fyrir mun nánari samvinnu, skipulagi og eftirliti sérstaklega á svæðinu milli Íslands og Grænlands. Björgunarþyrlur eru nánast ófáanlegar svo að var mikil heppni að okkur skildi takast að ná í þessar tvær þyrlur sagði Georg í lokin.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica