Janúar
Hvalnesskriður (@RG)
Hvalnesskriður (@RG)
Hvalnesskriður (@RG)
Mynd 1 af 6
1 2 3 4 5 6

23.01.2007 Janúar

Þið vegagerðarmenn hérna eruð algjörar hetjur

Starfsmenn Vegagerðarinnar fá ósjaldan að heyra það hvað akvegirnir okkar séu vondir, mjóir og allt það. En ætli margir vegfarendur sem aka leiðina um Þvottár- og Hvalnesskriður að ógleymdum Hvaldal sem er sunnan Hvalnesskriða, hafi hugleitt hvernig það er að halda þessum akvegi opnum og eins vel akfærum og mögulegt er. Fæstir gera sér grein fyrir hversu hættulegt starf þetta er því oft og tíðum eru þeir sem þarna eru að hreinsa veginn flesta daga ársins í mikilli lífshættu en lán okkar vegfarenda er að þarna eru að verki nánast sömu mennirnir áratugum saman, menn sem vita nákvæmlega hvað gera skal þegar illa viðrar á þessum slóðum. Það er því ekki furða þó undrunarsvipur kæmi á Jón Helgason hjá Vegagerðinni á Höfn, sem unnið hefur í skriðunum í nær aldarfjórðung, þegar ökumaður stansaði hjá honum í skriðunum og sagði ?þið vegagerðarmenn hérna eruð algjörar hetjur og eigið mikið hrós fyrir hvernig þið getið haldið þessum vegi opnum og yfirleitt þorið að vera hér, meira hef ég ekki að segja? að þessu mæltu kvaddi hann og ók áfram. Þetta var sannarlega rétt og vel mælt og hefur án efa yljað Jóni um hjartaræturnar.

Jón samþykkir að vissulega sé oft óþægilegt að vinna á tækjunum þarna alveg fram á brúninni (þar er milli 80-90m hengiflug niður í sjó) í vondum veðum en gott dæmi er um slíkar aðstæður var vinnudagur hans 20 des.sl.

Það var búið að moka þarna í skriðunum frá kl.13 um daginn segir Jón, það var rennsli niður skriðuna en ekki þannig að vegurinn lokaðist alveg og alltaf var einhver umferð. Þegar síðasti bíllinn sem komst um skriðurnar þennan dag var að koma heyrði ég djöflagang uppi í gili og vissi að þá væri eitthvað að ske, sá um leið að bíll sem kom að austan og var að koma að gilinu var á það mikilli ferð að hann slippi framhjá skriðunni sem var að byrja að leka niður á veginn. Ökumaðurinn stansaði svo hjá mér og ég benti honum að líta til baka þar sem hann var fyrir ca. 30 sek. Þá hafði mikil skriða lokað veginum algjörlega, 20 þúsund rúmmetrar af aur og grjóti, stærsta skriðan sem komið hefur þarna frá því vegurinn var lagður. Hefði bíllinn verið þar sem skriðan kom hefði hann ekki átt neina möguleika á að sleppa framhjá. Tvær nýjar rútur sem komu með Norrönu og fóru um skriðurnar um ½ klst. áður en skriðuhlaupið kom stórskemmdust í Hvaldalnum vegna sand-og malarfoks. Um kl 20 var útséð um að þarna yrði meira að gert í roki og rigningu og engin aðstaða eða tækjabúnaður til að eiga við skriðuna sem lokaði veginum þarna í Þvottárskriðum.

Óvenju mikið hefur verið um mikil hvassviðri og ofsaveður á þessum slóðum í vetur og hefur orðið mikið tjón á ökutækjum. Jón lenti í einu slíku veðri í desember þegar hann var á leið til vinnu sinnar í skriðunum og austan Svínhóla var veðurofsinn slíkur að þrjár rúður í bílnum splundruðust og þá var ekki um annað að gera en snúa við. Þennan dag var Hvaldalur kolófær vegna veðurofsa. Veghefill sem stóð rétt við skriðurnar skemmdist mikið, allar rúður og öll ljós brotnuðu og lakkið ónýtt.

Myndirnar sem þessari grein fylgja gefa okkur smá innsýn í þá aðstöðu sem starfsmenn Vegagerðarinnar á Hornafirði vinna við og þá miklu nauðsyn á að gerð verði jarðgöng í Lónsheiði og þessari hættulegustu leið hringvegarins verði lokað.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica