Janúar
Frá Breiðamerkursandi (mynd ebe)
Frá Breiðamerkursandi (mynd ebe)
Úr Ríki Vatnajökuls, frá Breiðamerkursandi (úr myndasafni @ebe)

22.01.2007 Janúar

Fjáröflunarferð í Skaftafellssýslur

Landssamtök blindra í Bretlandi, eða Royal National Institute of the Blind, skipuleggja fjáröflunarferð til Íslands í september á þessu ári eða svo greinir Fréttablaðið frá í dag. Þar kemur einnig fram að þátttakendur að utan munu ferðast fótgangandi um Skaftafellssýslur, en til þess að komast í ferðina verða þeir fyrst að afla því sem nemur um 280.000 krónum, sem renna til samtakanna. Gönguferðin sjálf tekur fjóra daga, með viðkomu í Skaftafelli, við Breiðamerkurlón, við Kvíárjökul og á Ingólfshöfða, þar sem ferðabóndinn Sigurður Bjarnason á Hofsnesi mun væntanlega leiðbeina hópnum um höfðann. Samkvæmt heimasíðu samtakanna er miðað við að hver gönguhópur samanstandi af um sextíu manns.

Gönguferð um Ísland er þó ekki eina fjáröflunarferðin sem samtökin bjóða upp á. Áhugasömum gefst meðal annars færi á að afla tæpra 350.000 króna fyrir hjólaferð um bakka Nílar eða gönguferð í Kenía.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica