Bónus leitar að verslunarhúsnæði á Höfn
Í nýjasta fasteignablaði sem fylgir með Fréttablaðinu í dag auglýsir Bónus eftir verslunarhúsnæði á Höfn. Þar kemur fram að húsnæðið þarf að vera allt að 1000 fermetrar að stærð ásamt góðum bílastæðum. Óskar Bónus eftir því að þeir sem hafa áhuga sendi tilboð á skrifstofu Bónuss að Skútuvogi 13 fyrir 5. febrúar n.k. Mikil óvissa hefur verið í matvöruverslunarmálum hér í Sveitarfélaginu undanfarið en eftir að ljóst var að opnuð yrði ný Nettó verslun í Miðbæ önduðu margir léttar.
Eins og fram kom hér á vefnum í vikunni þá náðst samkomulag milli Samkaupa Suðurnesja-Nettó og Kaupáss um að Samkaup-Nettó keypti allar innréttingar í 11-11 versluninni í Miðbæ sem ætti að flýta fyrir opnun nýrrar matvöruverslunar í Miðbæ.





Skrifa athugasemd