Metaðsókn í nám við FAS
Núna er innritun í skólann fyrir vorönnina lokið. Það er orðið ljóst að aldrei hafa fleiri verið skráðir í nám við FAS. Alls eru skráðir 316 nemendur í skólann. Fjarnemendur eru um 190 og hafa aldrei verið fleiri. Flestir eru skráðir í 30 tonna réttindanám eða 68. Fjarnemendur frá ME og VA eru 47. Á sjúkraliðabraut sem er sameiginlegt verkefni framhaldsskólanna á Austurlandi eru 33 nemendur. Aðrir fjarnemendur eru 38 sem flestir stunda nám á stúdentsbrautum. Nemendur sem mæta reglulega í tíma eru oft kallaðir staðnemendur og eru þeir um 130. Þar af eru 19 skráðir í vélstjórnarnám. Óvenju hátt hlutfall nemenda sem stefnir að stúdentsprófi er á náttúrufræðibraut eða 57% staðnemenda, en siðustu árin hefur félagsfræðabrautin verið vinsælust.
Meðfylgjandi mynd var tekin í hljóðfræðitíma hjá Zophoníasi í morgun. Þar er oft þröngt setinn bekkurinn enda vel yfir 30 í áfanganum.
www.fas.is





Skrifa athugasemd