Hagvöxtur á heimaslóð
Ferðaþjónustuaðilar í Hornafirði ásamt lykilfyrirtækjum í atvinnuþróun taka í vetur þátt í námskeiði sem heitir Hagvöxtur á heimaslóð. Námskeiðinu sem er skipulagt af Útflutningsráði er skipt í fjögur tveggja daga námskeið með nokkru millibili og er það síðasta í lok mars. Námskeiðið verður tvisvar á Þórbergssetri, það fyrra var núna í vikunni, og hinir staðirnir eru Hótel Höfn og Árnanes. Skráðir þátttakendur eru 20 ferðaþjónustuaðilar allsstaðar að af svæðinu. Þetta gengur ljómandi vel hjá okkur segir Þorbjörg Arnórsdóttir á Hala, þátttakendur fá fræðslu og hjálp við markaðssetningu og vöruþróun innan síns fyrirtækis einnig er fjallað um samvinnu og hvernig okkur tekst að efla samstöðu og auka vinnuframboð ferðaþjónustuaðila á svæðinu. Einnig er þetta líka liður í að skapa tengingu við t.d. Háskólasetrið, Frumkvöðlasetrið, Menningarmiðstöðina og þessa staði sem skipta máli með uppbyggingu svæðisins í heild og ferðaþjónustu sem atvinnugreinar.
Eitt af meginmarkmiðunum sem mikið er fjallað um er að finna eitthvað til að lengja ferðamannatímann. Fjölmargir aðilar koma með fyrirlestra og umfjöllun um bæði staðreyndir upplýsinga í tölum og aðferðarfræði í stefnumótun. Þetta er geysilega viðamikið námskeið segir Þorbjörg og tíminn milli námskeiðanna er ætlaður til að þátttakendur geti unnið áfram og náð betri tengingu og árangri. Með því að vera með námskeiðið á fleiri stöðum er stuðlað að því að þátttakendur geti betur kynnst mismunandi starfsemi í þessari þjónustu.




Skrifa athugasemd