Janúar
Blóm & Bróderí
Blóm & Bróderí
Systurnar og blómakonurnar Gunnhildur og Hafdís

19.01.2007 Janúar

Blómahaf á Bóndadaginn í Blóm & Bróderí

Systurnar og blómakonurnar Hafdís og Gunnhildur eiga heiður og þakkir skyldar fyrir þá framtakssemi að opna blómasölu með meiru þegar útlit var fyrir að Hornfirðingar yrðu að hætta að kaupa blóm og tilheyrandi skreytingar þegar blómabúðin á staðnum lokaði og hætti. En sem sagt þessar elskur ætla að sjá til þess að allar eiginkonur í Hornafirði og nágrenni geti keypt blóm í dag Bóndadaginn því búðin þeirra Blóm & Broderí á Víkurbraut 5 er full af nýjum afskornum blómum. Að sögn þeirra systra er mikið blómafólk hér í Sveitarfélaginu og nokkuð víst að margar konur hér munu færa mönnum sínum blóm að gjöf í tilefni Bóndadagsins. Þá bjóða þær líka til sölu svuntur sem eru merktar með þeim texta sem hver og ein kona vill að standi á svuntunni, enda leynast víða duglegir menn við eldhússtörfin. Í tilefni Bóndadagsins verður opið hjá þeim frá kl.13-18.

Athugið að í dag á Bóndadaginn er búðin opin frá kl.13 ? 18. Venjulegur opnunartími er þriðjudaga,fimmtudaga og föstudaga frá 16-18 og laugardaga kl. 11-15.
Ef fólk þarf á þjónustu þeirra að halda fyrir utan þennan opnunartíma er hægt að hringja í síma 864-1966.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica