Hefur samið um smíði á nýjum Víking bát
Útgerðarfélagið Nóna ehf hefur samið um smíði á nýjum Víking bát sem kemur í stað Ragnars Sf 550. Nýi báturinn er mun stærri en Ragnar og fullkomnari segir eigandinn Arnar Ragnarsson, og því tímabært að endurnýja. Nýi báturinn er Víkingur 1200 smíðaður hjá Samtaki í Hafnarfirði, yfirbyggður eins og Ragnar, 11,94 m langur, og 4,2 m breiður. Þessi nýi verður 40 cm breiðari en Ragnar, 40 cm hærri,70 cm lengri og gengur 24 mílur en Ragnar gengur 12 mílur. Burðargeta nýja bátsins er 13 tonn í körum en Ragnar tekur 7 tonn í körum. Línukerfi er fyrir 22 þús. króka á móti 15 þús. króka línu í Ragnari. Verð á nýja bátnum er 70 mkr og verður hann tilbúinn til afhendingar í sept. nk. Arnar segir mikinn mun að hafa bátinn svona yfirbyggðan og hann henti á allan hátt mjög vel til útgerðar hér. Ragnar Sf 550 er til sölu og flyst Ragnars-nafnið yfir á nýja bátinn sem verður þriðji bátur Arnars með nafni föður hans.
Arnar fluttist til Hornafjarðar fyrir tveim árum ásamt fjölskyldu sinni og þriggja manna áhöfn frá Ólafsvík og segist hann mjög ánægður hér. Hann segir veiði hafa gengið vel það sem af er vertíð og nóg af fiski, reyndar vantar þorskinn en mikið er af ýsu.





Skrifa athugasemd