Janúar
Forsetaheimsókn 25.apríl 2006
Forsetaheimsókn 25.apríl 2006
Forsetaheimsókn 25.apríl 2006 (úr myndasafni)

16.01.2007 Janúar

40 nýir Austur-Skaftfellingar fæddust á síðasta ári

Árið 2006 fæddust 40 nýir Austur-Skaftfellingar og þar af voru einir tvíburar, jöfn skipting milli kynja. Áslaug Valsdóttir ljósmóðir segir að þar af hafi 20 konur fætt hér heima, hinar fóru til Reykjavíkur. Konur geta valið um hvort þær vilji fæða heima hjá sér eða á hjúkrunarheimilinu og hafa nokkrar kosið að fæða heima og þá er þetta bara eins og hér áður fyrr, ég fer heim til þeirra þegar komið er að fæðingu tek á móti barninu og móðir og barn fá síðan sömu umönnun og þær sem fæða á fæðingarheimilum. Þetta er metár í fæðingum hér miðað við nokkur síðustu ár segir Áslaug, en ekkert miðað við það sem var hér áður fyrr. Von er á fyrsta nýja Hornfirðingnum á þessu ári einhvern næsta dag.

Áslaug segir að ekki líti út fyrir neina sérstaka frjósemi hér á staðnum hvað barneignir varða árið 2007, það séu svona ein til tvær fæðingar á mánuði en ef slá eigi metið frá síðasta ári verði fólk að fara að taka sig á og umfram allt að snúa rétt í rúmunum.

Á þeim fimm árum sem Áslaug hefur starfað sem ljósmóðir hér hefur hún tekið á móti um eitt hundrað börnum.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica