Janúar
Skeiðarárbrú (úr myndasafni mars 2004)
Skeiðarárbrú (úr myndasafni mars 2004)
Skeiðarárbrú (úr myndasafni mars 2004)

16.01.2007 Janúar

Skrifað undir verksamning um styrkingu og hækkun garða vestan við Skeiðará

Alls bárust 13 tilboð í gerð og styrkingu varnargarða vestan Skeiðarár. Í gær var skrifað undir verksamning við Héraðsverk ehf sem átti lægsta tilboðið kr. 52.927.465. sem er 62.7 % af áætluðum kostnaði kr. 84.391.700. Verkið felst í því að styrkja og hækka garða sem eru vestan við Skeiðará og varna því að áin flytji sig vestar á sandinn og flæði þar yfir þjóðveginn. Stöðugt eftirlit þurfti með görðunum síðast liðið sumar og aðgerðir til að halda ánni í skefjum. Lengd garðanna er 2.400 m, fylling í garðana 25.200 rúmmetrar og grjótvörn 23.900 rúmmetrar.


Verkinu skal að fullu lokið 15.júní 2007.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica