Stella hefur lokið verkefninu SPA svo nú er boltinn hjá heimamönnum
Um síðustu helgi kynnti Stella Sigfúsdóttir markaðs-og ferðamálafræðingur niðurstöður fýsileikakönnunar á því að reisa heilsulind í ríki Vatnajökuls og hvort SPA Vatnajökull- heilsulind sé áhugaverð og tekjuskapandi nýsköpun í atvinnulífi í ríki Vatnajökuls. Sigurlaug Gissurardóttir formaður FASK stóð að fundinum ásamt Stellu og sagði hún að mjög góð mæting hefði verið á fundinum bætti við ,,mér fannst svona jákvæður andi svífa þar í húsinu´´. Það er engin spurning um að þarna var verið að kynna áhugaverðan kost fyrir svæðið hér og fyrir áhugasama að þróa þetta áfram. Stella hefur lokið þessu verkefni hjá SPA og skilað því af sér svo nú er boltinn hjá heimamönnum að þróa hugmyndina áfram og verður nánar sagt frá þessu áhugaverða verkefni í næstu viku.
Í næstu viku munum við greina nánar frá verkefninu SPA.




Skrifa athugasemd