Janúar
Miðbær
Miðbær
Netto verslun opnar í Miðbæ

13.01.2007 Janúar

Netto opnar í Miðbæ og fasteignafélag í eigu Kaupfélags Suðurnesja kaupir húseignir á Höfn

Við höfum náð samkomulagi við KHB um að taka yfir verslunarrekstur í Miðbæ á Hornafirð og fasteignafélag í eigu Kaupfélags Suðurnesja kaupir húseignirnar Miðbæ, verslunarhúsið á Vesturbraut og húsið á Hafnarbraut 30 þar sem Jöklasýningin er til húsa sagði Sturla Eðvarðsson hjá Samkaupum þegar fréttamaður vefsins spurði hann um stöðu verslunarmála hér. Áður var áformað að KHB á Egilsstöðum opnaði Samkaup?úrval á Höfn en við mátum það þannig að meiri sátt yrði um lágvöruverðsverslun á staðnum. Okkar áform var að opna verslun 28. febrúar þegar leigusamningur við Kaupás rennur út en eins og staðan er núna þá fáum við ekki afhent rýmið fyrr en 28. febrúar. Kaupás tekur allar sínar innréttingar og öll tæki burtu og verður líklega farið í að rífa það niður um næstu mánaðarmót. Fyrsta mars eða strax og við komumst inn verður farið að lagfæra húsnæðið og vonandi tekur það ekki nema um hálfan mánuð þar til við getum opnað þarna glæsilega verslun.

Sturla segist hafa áhyggjur af verslunarmálum á Hornafirði þar sem stefnir í að matvöruverslun 11-11 verði lokað 1. febrúar og þá verði engin matvöruverslun á staðnum. Við höfum reynt að ná samningum við Kaupás, um lendingu í þessum máli en það náðist ekki því miður, ég er því byrjaður á leita að húsnæði fyrir bráðabirgðaverslun þar sem neytendur á Hornafirði geta fengið helstu nauðsynjavörur þar til nýja verslunin verður tilbúin.

Aðspurður um starfsfólk í verslunina sagði Sturla að talað yrði við það fólk sem þarna hefur unnið, ég geri ráð fyrir að við munum auglýsa eftir fólki á Hornafirði og auðvitað óskum við eftir að þetta fólk sæki um. Færra fólk þarf til starfa í Nettó-verslunum þar sem þær eru öðruvísi settar upp en í þjónustuverslunum. Opnunartími er frá 10.00-19-00 og opið laugardaga og sunnudaga.

Við vonumst eftir góðri samvinnu með íbúunum á Hornafirði og munum reyna að bjóða upp á gott úrval í versluninni. Það hefur verið styrkleikur Nettó að vera með gríðarlega mikið úrval á ferskvöru, grænmeti og ávöxtum. Að lokum sagði Sturla ,,ég vona að við komum til með að standa vel að þessu hjá ykkur á Hornafirði ´´.

Við þökkum Sturlu góðar upplýsingar og ekki er nokkur vafi á að Hornfirðingar bíða Samkaup-Nettó með mikilli eftirvæntingu og að með komu þessara aðila geti fólk hætt að elta Bónusverslanir uppi hvar sem færi gefst og versli í heimabyggð.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica