Janúar
Veðrið á Höfn 12. janúar 2007 kl. 11:00
Veðrið á Höfn 
(úr myndasafni)

12.01.2007 Janúar

Fróðlegir veðurpunktar frá Veðurstofunni

Veðurfar skiptir okkur öll miklu og sagt er að það sé algengasta umræðuefni íslendinga og því væri fróðlegt að skoða nokkra veðurpunkta frá Veðurstofu Íslands frá síðasta ári. Janúar 2006 var lengst af hlýr en nokkuð votviðrasamur sunnan og vestanlands. Mestur hiti mældist á Seyðisfirði þ.4., 15,4 stig. Kuldakast kom nokkra daga um miðjan mánuðinn og mældist þá mest frost á landinu á Veiðivatnahrauni, 23,2 stig þ.17. Þetta var hlýjasti janúar frá 1996. Meðalhiti á Akureyri var 1,8 stig og er það 4 stigum ofan meðallag. Í Akurnesi var meðalhitinn 2,2 stig. Úrkoma í Akurnesi mældist 266 mm. Febrúar var mjög hlýr á landinu og hiti yfir meðallagi Í Akurnesi var meðalhiti 3,1 stig, nánast sami og 2003 og úrkoma þar mældist 104mm. Lægsti hiti í mánuðinum mældist á Brúarjökli þ.8, -25,8 stig, en hæstur varð hitinn á Seyðisfirði 16,2 stig að kvöldi þ.21.

Í mars var hiti ofan við meðallag á tilteknum veðurstöðvum nema í Akurnesi þar mældist meðalhitinn 0,6 stig og er það 0,6 stigum undir meðallagi.Úrkoma í Akurnesi var 43mm.
Lægsti hiti mánaðarins mældist á veðurstöð á Brúarjökli, -24,6 stig og -24,4 stig í Möðrudal, hvort tveggja 5. dag mánaðarins. Hæstur varð hitinn á sjálfvirku stöðinni á Fagurhólsmýri 16,6 stig þ.18.
Tíðarfar í apríl var nærri meðallagi á landinu, en heldur kalt og rysjótt. Í Akurnesi var meðalhitinn 3,1 stig eða 0,3 yfir meðallagi, úrkoma var 96mm.

Fyrstu 10 dagar maí voru með allra hlýjasta móti, en vikan í kringum þann 20. var aftur á móti meðal þeirra köldustu á þessum tíma árs. Hiti komst víða yfir 20 stig í hlýindakaflanum.
Í Akurnesi mældist meðalhiti 5,8 stig og úrkoman mældist 88mm.
Í júnímánuði var úrkomu- og umhleypingasamt um landið sunnanvert, en hagstæðara norðan- og austanlands. Talsvert kuldakast gerði þ.12. til 13.
Meðalhiti í Akurnesi var 9,9 stig eða 1,5 stigum yfir meðallagi og úrkoman 85mm

Júlímánuður var nærri meðallagi á flestum sviðum. . Meðalhiti í Akurnesi var 11,0 stig sem er
0,6 stigum yfir meðallagi og úrkoma mældist 147mm
Ágústmánuður var yfir meðallagi hlýr um allt land. Meðalhitinn 11,4°C í Akurnesi sem er 1,4 gráðum yfir meðallag. Í Akurnesi var úrkoman 49.9 mm.

Í september flutti veðurathugunarstöðin frá Akurnesi á Höfn og koman hér fyrstu tölur frá veðurathugunarstöðinni þar. September mánuður var ákaflega hlýr um allt land og á Höfn var meðalhitinn 10,0 stig sem er 2.3 gráðum yfir meðaltali og útkoman 115 mm.

Októbermánuður var í hlýrra lagi, á Höfn mældist meðalhitinn 5.7 stig, sem er 1.2 stigi yfir meðaltali og úrkoman 186mm.
Mikið kuldakast gerði um miðbik nóvember. Á Höfn var meðalhitinn 1.4 stig sem er 0,6 stigum minna en í meðalári og mældist lægsti hiti -9 stig þann 19. úrkoma 97mm.
Hæsti hiti sem mældist á landinu var 14.8 stig, á Seyðisfirði 2. nóvember. Lægsti hiti mældist þann 18. á Brúarjökli, -25,2 stig.
Mesti vindhraði mánaðarins mældist þann 5. nóvember 44,9m/s á Gagnheiði og vindhviður náðu 56,8m/s á sama stað. Mesti vindur í byggð þennan sama dag mældist 32 m/s á Stórhöfða og þar fóru vindhviður upp í 43,3 m/s.

Desember var víða erfiður vegna umhleypinga og hvassviðri voru tíð. Á Höfn var meðalhitinn 3,6 stig og mældist úrkoman 243 mm.

Hæsti hiti sem mældist á árinu var í Ásbyrgi 3. ágúst, 25,7 stig, hæsti hiti á mannaðri stöð mældist á Staðarhóli í Aðaldal 4. ágúst, 24,0 stig. Lægsti hiti mældist á Brúarjökli 18. nóvember, -26,1 stig, daginn eftir mældist 25,3 stiga frost á sjálfvirku stöðinni í Möðrudal, en -24,5 á mönnuðu stöðinni á sama stað.
Mesta sólarhringsúrkoma sem enn hefur frést af á árinu mældist í Kvískerjum í Öræfum þ.20. desember, 175,3mm.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica