Geðheilbrigðissamningur undirritaður
Samningur um geðheilbrigðisþjónustu við börn og unglinga var undirritaður í morgun við Heilbrigðisstofnun Suðausturlands á Höfn í Hornafirði. Siv Friðleifsdóttir, heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra, skrifaði undir samninginn fyrir hönd ráðuneytisins og Guðrún Júlía Jónsdóttir, framkvæmdastjóri, fyrir hönd heilbrigðisstofnunarinnar. Samkvæmt þessum samningi fær Heilbrigðisstofnun Suðausturlands eina milljón kr. á ári í tvö ár sem notað verður til að efla geðheilbrigðisþjónustu við börn og ungmenni í sveitarfélaginu. Í samningnum er miðað við að efla heilsugæsluna sem fyrsta viðkomustað í heilbrigðisþjónustunni og að börn og ungmenni með geð- og hegðunarröskun og forráðamenn þeirra eigi þess kost að leita sér aðstoðar í grunnþjónustunni.
Ráðherra sagði við undirritun samningsins að með samningnum er Heilbrigðisstofnun Suðustaurlands m.a. gert kleift að semja um farþjónustu við sérfræðinga og tryggja reglubundnar heimsóknir sérfræðinga til að sinna börnum á þessu sviði. Gengið er út frá því í samningnum að þjónustan sem Heilbrigðisstofnun Suðausturlands veitir geti falist í meðferð, fræðslu og ráðgjöf sérfræðinga í barnageðlækningum, sálfræði, uppeldisfræði, geðhjúkrun, þjónustu iðjuþjálfa eða félagsráðgjafa
Siv Friðleifsdóttir, heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra, kynnti sér starfsemi heilsugæslunnar, skoðaði sjúkradeildir og heilsaði upp á starfsfólk Heilbrigðisstofnunarinnar. Ráðherra hitti einnig sveitarstjórnarmenn og kynnti sér þjónustu við aldraða á Höfn, en þar hafa menn verið að breyta áherslum í þjónustunni við aldraða. Dvalarrýmum hefur verið fækkað, aðstaða aldraðra bætt að sama skapi og vaxandi áhersla hefur verið lögð á heimaþjónustu og heimahjúkrun undanfarið þannig að aldraðir geta búið lengur heima hjá sér. ? Við höfum verið að auka heimaþjónustu og heimahjúkrunar við aldraða, segir Guðrún Júlía Jónsdóttir, framkvæmdastjóri stofnunarinnar, sem kynnti ráðherra starfsemina og segir hún að þessar breytingar hafi mælst vel fyrir hjá öldruðum og aðstandendum þeirra og skapi öldruðum aðstæður til að geta verið heima .
Þá var í heimsókn ráðherra formlega tekinn í notkun ný röntgenmyndavél á heilbrigðisstofnuninni en einstaklingar og fyrirtæki gáfu stofnuninni andvirði tækisins, kostuðu uppsetningu þess alls 12,4 mkr og breytingar á húsnæðinu sem gera þurfti. Ester Þorvaldsdóttir lýsti notkun nýju myndavélarinnar og þeirri gjörbyltingu sem þetta tæki er fyrir lækna og hjúkrunarfólk heilsugæslustöðvarinnar.





Skrifa athugasemd