Flugfélag Íslands hélt Vigni kveðjusamsæti eftir 40 ára starf
Þann 1. janúar síðast liðinn urðu þáttaskil hjá Vigni Þorbjörnssyni umdæmisstjóra á Hornafjarðarflugvelli þegar hann lét af störfum sem umdæmisstjóri hjá Flugfélagi Íslands og hélt Flugfélagið honum og Ragnhildi Eymundsdóttur konu hans veglegt kveðjusamsæti sl. föstudag og kom fjölmennt lið samstarfsmanna þeirra frá Flugfélaginu til að þakka þeim hjónum samstarfið. Alls komu til hófsins um 150 manns, þar af komu 37 með Fokker frá Reykjavík. Vignir hefur starfað hjá Flugfélaginu í rúm 40 ár og reyndar gott betur því strax um tíu ára aldurinn var hann farinn að hjálpa foreldrum sínum í flugafgreiðslunni á Hafnarbrautinni. Þetta var bara svona í þá daga sagði Vignir, fjölskyldan hjálpaðist að við það sem gera þurfti og ég hélt svo áfram við þetta þegar bræður mínir fóru til annarra starfa.
Vignir er þriðji ættliðurinn sem séð hefur um flugafgreiðsluna á Hornafirði en frumkvöðull í þeim málum og fyrsti umboðsmaður Flugfélagsins á Hornafirði var afi hans Sigurður Ólafsson og síðan Þorbjörn faðir hans þar til Vignir tók við starfi umboðsstjóra Flugfélags Íslands á Suðausturlandi 1970. Undanfarin ár hefur Ragnhildur starfað við afgreiðsluna á flugvellinum bæði inni í farþegaafgreiðslu og utandyra við flugvélarnar.
Margs er að minnast frá þessum árum og segir Vignir að þar standi Melatangaárin uppúr, þau voru mjög skemmtileg og ég náði í restina af þeim eða frá 1957. Þá var flugvöllurinn úti á Melatanga og það var óskaplega skemmtilegt að fara út á bát yfir fjörðinn þegar veður var gott en það gat líka verið erfitt þegar illa viðraði, mikill straumur og jafnvel ísrek. Það voru margir sem sáu eftir flugvellinum á Melatanga þegar nýi flugvöllurinn við Árnanes var tekinn í notkun 1965 þegar fyrsta áætlunarvélin lenti þar. Frá 1962 höfðu sjúkraflugvélar getað lent á nýja vellinum og var mikil hagræðing af að geta farið með sjúklingana á bíl í flugvélina.
Vignir og Ragnhildur eru þó ekki hætt að veita sína einstöku þjónustu á Hornafjarðarflugvelli því þau hafa ráðið sig við afgreiðslu þar fyrir Flugfélagið Erni sem tók við flugi til Hornafjarðar um áramótin. Samstarfið við Flugfélagið Erni leggst vel í mig, þetta lofar góðu segir Vignir, ég hef fylgst vel með þessu flugfélagi gegnum árin og það er enginn vafi á að þeir ætla að reyna að gera þetta eins vel og mögulegt er. Vignir vildi koma á framfæri þakklæti til allra þeirra sem glöddu þau hjónin með gjöfum og heimsókn í kveðjusamsætið.
Hornafjörður.is óskar þeim hjónum alls hins besta í nýja starfinu.




Skrifa athugasemd