Í næstu viku skýrist hvaða verslun mun opna í Miðbæ
Nú styttist í að verslun Kaupás 11-11 í Miðbæ verði lokað og er starfsfólk verslunarinnar byrjað að pakka vörum og senda til Reykjavíkur. Starfsfólki verslunarinnar hefur verið sagt upp frá 1.mars nk. en ég á eins von á að versluninni verði lokað 1.febrúar segir Helga Vignisdóttir verslunarstjóri. Hér hafa verið 28 fastráðnir starfsmenn sem nú vita ekki hvað við tekur hjá þeim eða hvort þeim bjóðast störf hjá nýjum verslunaraðilum. Ekki er ljóst á þessari stundu, hvort Kaupás skilar verslunarhúsnæðinu mánuði fyrr þ.e. 1.mars þegar leigusamningar við Kaupfélag Héraðsbúa rennur út. Hornfirðingar eru að vonum mjög ósáttir með hvernig verslunarmál hvað varðar matvöruverslun á staðnum hafa þróast og nota hvert tækifæri sem gefst til að versla þar sem lágvöruverslun er að finna hvort sem það er austan eða sunnanlands. Húsnæði það sem verslunin Krónan var í hefur staðið autt síðan í haust þegar versluninni var lokað en húsnæðinu verður ekki skilað fyrr en leigusamningur rennur út.
Að sögn Björns Ágústssonar hjá KHB munu þessi verslunarmál skýrast eftir helgi og þá hvaða verslun kemur til með að verða í Miðbæ. Björn sagði að reynt yrði að bjarga ,,málunum´´ ef 11-11 yrði lokað um næstu mánaðarmót þó húsnæðið yrði ekki laust þá.





Skrifa athugasemd