Janúar
Blekbytta Þórbergs
Blekbytta Þórbergs
Blekbytta Þórbergs sem nemendur Iðnskólans í Reykjavík 1924-1925 gáfu honum eftir að yfirvöld skólans höfðu vísað honum frá kennslu eftir að hann skrifaði bókina Bréf til Láru.

05.01.2007 Janúar

Í kompaníi við Þórberg og Matthías

Vefsíðan thorbergur.is hefur verið uppfærð nýlega og mikið af nýju efni er komið inn á síðuna. Má þar nefna grein sem heitir Í kompaníi við Þórberg og Matthías eftir Sverri Árnason, og einnig nokkrar greinar undir liðnum í Suðursveit m.a. um Sjósókn í Suðursveit og ferðalög yfir Breiðamerkursand. Einnig koma nýjar fréttir af og til inn á forsíðuna og reynt er að færa reglulega inn í dagbókina. Hægt er að skrá sig inn á póstlista síðunnar inn á Þórbergsvefnum og berast þá tilkynningar um nýtt efni jafnóðum og það er birt á vefsíðunni. Þórbergsvefurinn er nú mikið notaður af námsfólki og fræðimönnum og berast gjarnan fyrirspurnir til Þórbergsseturs frá fólki sem er að vinna efni um Suðursveit eða verkefni tengd Þórbergi Þórðarsyni, ævi hans og bókmenntum.

Ef að einhver lumar á góðum greinum eða fræðsluefni, ég tala nú ekki um gömlum myndum væri vel þegið að fá að birta þær inn á vefnum. Það getur einnig átt við um ritgeðir eða verkefni nemenda sem eru að fjalla um efni tengt Suðursveit. Hafa má samband við Þorbjörgu í síma 478 - 1078 / 867 2900 eða á netfangið thorbergssetur@simnet.is

www.thorbergur.is

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica