Janúar
Þrettándabrenna 2005
Þrettándabrenna í Nesjum
Frá þrettándabrennunni við Stekkhól

05.01.2007 Janúar

Þrettándabrenna Mána

Eins og undan farin ár þá stendur Ungmennafélagið Máni fyrir Þrettándabrennu inn við Stekkhól í Nesjum. Brennan verður haldin annað kvöld (laugardagskvöldið 6.janúar) og mun verða kveikt í bálkestinum kl.20:30. Samkvæmt upplýsingum frá Spádeild Veðurstofunnar þá lítur út fyrir að það geti orðið ákjósanlegt veður til Þrettándabrennu, en það er þó ekki alveg útséð um hvort það gæti orðið einhver rigning hér á suðausturlandinu þar sem úrkomubakki er við suðausturmiðin, ef svo verður þá er bara að taka með sér regnfatnað á brennuna. Hitastig verður um frostmark.

Vegna hestagirðingar og nánd við skepnur inn við Stekkhól verða hverskonar blys og flugeldar bannaðir á svæðinu.


Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica