Janúar
Vestrahorn-25.01.2005
Vestrahorn
Sólaruppkoma (úr myndasafni)

04.01.2007 Janúar

Vettvangur fyrir öflugt þróunar og þekkingarstarf í framtíðinni

Í dag verður skrifað verður undir Vaxtarsamning Austurlands á Hótel Héraði Egilsstöðum. Að samningnum koma 55 aðilar, iðnaðarráðuneytið, öll sveitarfélög á Austurlandi, fyrirtæki, stofnanir og háskólar af öllu landinu. Samningurinn hljóðar uppá framlag sem nemur rúmlega 190 milljónum á þremur árum, 2007-2009. Um er að ræða stærsta samning sinnar tegundar á landinu hingað til og hann er jafnframt sá vaxtarsamningur sem hvað víðtækust þátttaka er í. Með honum er tilkominn öflugur vettvangur fyrir uppbyggingar- og þróunarstarf á Austurlandi. Í samningnum eru skilgreind 4 vaxtarsviða sem eru: Menning og ferðaþjónusta, Matvælaframleiðsla, Menntun og rannsóknir, Iðnaður, tækni og verktakastarfsemi.


Dagskrá undirritunar er eftirfarandi:

13:30 Ávarp iðnaðarráðherra, Jóns Sigurðssonar
13:40 Fulltrúi verkefnisstjórnar kynnir störf hennar, Björn Hafþór Guðmundsson, formaður SSA
13:50 Næstu skref, framkvæmd vaxtarsamnings, Stefanía G. Kristinsdóttir, Þróunarfélag Austurlands
14:00 Undirskrift Vaxtarsamnings Austurlands
14:30 Kaffi og léttar veitingar
14:50 Fundir innan ólíkra sviða/klasa (myndun forystuhópa)
15:30 Samantekt

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica