Ríki Vatnajökuls - Desember
    <description>Ríki Vatnajökuls</description>
    <ttl>40</ttl>
90 ára afmælið á SkjáVarpi gamlárskvöld
      <description>Eins og á síðasta gamlárskvöldi mun 90 ára afmælið eða "Dinner for one" verða sýnt á SkjáVarpi og hefst þátturinn kl.22:00. Hefð er fyrir því að sýna þennan stutta breska svarthvíta leikþátt um hver áramót í Þýskalandi, Danmörku og nokkrum öðrum Evrópulöndum. Leikþátturinn fjallar um hefðarfrúna Miss Sophie sem er að halda upp á 90 ára afmælið sitt. Vandamálið er að allir gestirnir í afmælinu eru ímyndaðir "vinir" sem allir hafa farið yfir móðuna miklu. En Miss Sophie heldur sínu striki og býður þeim til veislu á hverju ári og lætur eins og þeir séu allir mættir. Eins og sagt er í þeim löndum sem hafa haft þáttinn til sýningar um hver áramót,,, það eru engin áramót nema heyra þjóninn James og Miss Sophie segja "The same procedure as last year, Madam? - The same procedure as every year, James."</description>
Flugfélagið Ernir fær nýja flugvél
      <description>Flugfélagið Ernir er að fá til landsins nýja flugvél síðdegis og lendir hún í Reykjavík um kl. 18:00. Vélin er af gerðinni Jetstream 32 og verður hún notuð í áætlunarflug hingað til Hafnar og á Sauðárkrók ásamt því að fljúga leiguflug. Vélin er búin jafnþrýstibúnaði með auknum þægindum fyrir farþega og tekur hún 19 manns í sæti. Flugfélagið Ernir á fyrir tvær 9 sæta flugvélar og verða þær notaðar í áætlunarflugið á Bíldudal og Gjögur í vetur en hyggst félagið verða komið með 19 sæta vél til að sinna Vestfjörðunum fyrir sumarið 2007. Flugfélagið Ernir er að taka við áætlunarflugi til Hornafjarðar eftir áramótin.</description>
Jólablað Þrykkjufrétta komið út
      <description>Jólablað Þrykkjufrétta kom út á þriðjudaginn. Í blaðinu sem er 20 síður litprentað er að finna fjölbreytt efni frá starfsemi Þrykkjunnar, einnig viðtöl m.a. við Arnar Guðjónsson körfuboltaþjálfara um uppgang körfuboltans hér á Hornafirði, gátur, draumaráðningar, stjörnuspá, skemmtilegar auglýsingar ofl. Blaðið er gefið út af Fjölmiðlaklúbbi Þrykkjunnar þar sem þær stöllur Þyrí Imsland, Þórgunnur Þórsdóttir og Hafdís Hauksdóttir allar í 10. bekk í Heppuskóla leiða útgáfuna. Blaðið er fjölbreytt og frísklegt og var því dreift til allra 8. og 10. bekkinga sem geta lesið það í bland við jólastússið. Þetta er annað tölublað Þrykkjufrétta á þessu hausti og hefur blaðið fengið góðar viðtökur.</description>
Friðarloginn frá Betlehem á Höfn
      <description>Síðast laugardag komu til Hafnar þrír skátar sem voru á ferð sinni um landið með friðarlogann frá Betlihem. Friðarloginn kynntur á litlujólunum í Hafnarskóla í vikunni og á stofujólunum var kveikt var á yfir 100 kertum og að sögn Þórgunnar skólastjóra var þetta mjög hátíðleg stund. Þeir sem vilja nálgast friðarlogann geta gert það hjá Luciu Hlíðartúni 23 eða hjá Bróa í Hafnarkirkju á Þorláksmessu. Til þess að sækja logann þá þarf viðkomandi að hafa með sér lukt eða lokað ljós. Loginn hefur verið verður boðinn þeim sem á vegi skátanna verða eins og gert hefur verið síðastliðin fimm ár. Skátarnir hafa stoppað á helstu þéttbýlisstöðum landsins og var skipulögð móttaka á mörgum stöðum um landið Endir friðargöngunnar var í friðargöngunni í Reykjarvík.</description>
Rífandi gangur hjá Þekkingarnetinu í Nýheimum
      <description>Þekkingarnet Austurlands hefur nú haft starfsemi á Hornafirði frá því 1. september síðast liðinn. Starfsmaður hefur verið í hlutastarfi og því aðeins til þjónustu í um 30 daga. Á þessum tíma hafa verið haldin námskeið um námstækni fyrir fólk í háskólanámi, námskeið í stafrænni ljósmyndun og fyrsta stigs íslenskunámskeið fyrir íbúa af erlendum uppruna sem 14 manns luku. Á Nýheimadaginn sem haldinn var 24. nóvember bauð Þekkingarnetið upp á námskeið í gerð aðventukransa og fóru 20 manns heim með krans af því námskeiði. Talsvert er um að fólk komi á skrifstofuna í Nýheimum til að velta fyrir sér möguleikum á námi og störfum og fá einstaklingsbundna ráðgjöf í þeim efnum og gaman er að geta þess að 47 einstaklingar stunda nú fjarnám á háskólastigi, allt frá grunnnámi til doktorsnáms.</description>
      <alt>Þekkingarnetið</alt>
Vel heppnaður Fjölskyldudagur í Haukafelli
      <description>Fjölskyldudagurinn í Haukafelli var haldin nú á sunnudaginn og tókst hann í alla staði vel, enda hefði veðrið ekki getað verið betra, létt frost, snjóföl og bjart. Saman nutu útiverunnar, börn, hundar, jólasveinar, foreldrar, afar og ömmur. Kakóið hjá Lucy og kökurnar sem Jón bakari gaf okkur runnu ljúft niður. Við þökkum öllum þeim sem fjölmörgu sem komu í Haukafell fyrir komuna. Þeir sem lögðu okkur lið með vinnuframlagi eða gáfu okkur efni fá einnig bestu þakkir. Ágóðinn af sölu jólatrjánna verður notaður til kaupa á plöntum, sem fella má sem jólatré eftir nokkur ár og til vegaframkvæmda, en til stendur að brúa ána og klára veginn í vor.</description>
Niðurstaða fjárhagsáætlunar 2007 jákvæð um 15 m.kr.
      <description>Markmið bæjarstjórnar fyrir árið 2007 er að viðhalda þjónustustigi og efla það en jafnframt að halda áfram að reka bæjarsjóð með ábyrgum hætti.  Árið 2007 einkennist af miklum framkvæmdum og viðhaldi eigna sveitarfélagsins.  Ennfremur eru stigin mikilvæg skref í stuðningi við atvinnulíf. Heildarvelta sveitarfélagsins og tengdra fyrirtækja er áætluð 1.585 m.kr. en heildargjöld 1.466 m.kr. að frádregnum fjármagnsliðum.  Fjármagnsliðir eru neikvæðir um 104 m.kr..  Niðurstaðan er því jákvæð um 15 m.kr.  Handbært fé frá rekstri er 167 m.kr.  Gert er ráð fyrir framkvæmdum upp á 318 m.kr. og lántöku upp á 236 m.kr.  Afborganir langtímalána eru 114 m.kr.  Handbært fé í árslok 2007 er áætlað 49 m.kr.</description>
Þrír ráðherrar og þingmaður í heimsókn
      <description>Miðvikudaginn síðasta fengu Hornfirðingar þrjá ráðherra og einn þingmann í heimsókn. Þetta voru þau Jón Sigurðsson  ,Jónína Bjartmarz , Guðni Ágústsson og Hjálmar Árnason. Farið var með þau í Nýheima til kynningar og fræðslu,sem og humarhótelið. Um kvöldið var haldinn fundur bæði félagsfundur og opinn. Þar var mikið spurt um málefni sem brenna á fólki hér,enda tækifærið gott. Tímasetningin var fín því að Framsóknarflokkurinn á 90 ára afmæli um þessar mundir og vel við hæfi að fá forystuna hingað frekar enn baka köku,við borðum þær bara um jólin.</description>
Sandbakkamyndin vinsælust
      <description>Nú er komið á sjötta ár frá því Brynjúlfur Brynjólfsson á Höfn stofnaði BB prentun og myndver og hefur starfsemin aukist með hverju árinu. Fréttamaður vefsins leit nýlega inn í prent- og myndverið til Brynjúlfs og Sigrúnar konu hans. Þau voru önnum kafin við að afgreiða pantanir á myndum og var greinilega nóg að gera. Brynjúlfur segir að  fyrsta árið hafi prentun jólakorta verið stærsta verkefnið en eftir því sem tækjakostur hefur batnað og hefur fjölbreytni verkefna aukist. Meðal þess sem BB framleiðir eru  glæsilegar ,,strigamyndir´´, myndir úr  Hornafirði þar sem náttúran skartar sínu fegursta og er Sandbakkamyndin þeirra vinsælust, einnig eru til sölu margskonar fuglamyndir, mjög fallegar. Hægt er að fá strigamyndirnar  á blindrömmum í mörgum stærðum allt frá 18x18 cm uppí 120x125 cm. Brynjúlfur segir sölu jólakorta ganga vel og voru prentuð um 12000 kort á síðasta ári  og  í ár lítur út fyrir góða sölu og er markaðurinn farinn að teygja sig til fleiri staða á landinu. Fólk getur fengið kort með sínum eigin myndum og texta. Það nýjasta fyrir þessi jól eru myndskreyttir gjafapokar og bókamerki sem Sigrún hannaði. Fyrir jólin er mikið að gera við gerð dagatala einkum persónulegra dagatala.</description>
Skinney-Þinganes gefur 60 milljónir til byggingar knattspyrnuhúss á Höfn
      <description>Í tilefni 60 ára afmælis Skinneyjar-Þinganess hf hefur félagið lýst yfir vilja til að koma að byggingu knattspyrnuhúss á Höfn með a.m.k. 60 milljóna króna framlagi. Í gær afhenti Gunnar Ásgeirsson stjórnarformaður Skinneyjar-Þinganess hf Árna Rúnari Þorvaldssyni, forseta bæjarstjórnar, bréf þar að lútandi. Í bréfinu kemur fram að á á þessu ári fagnar Skinney – Þinganes hf 60 ára afmæli. Um nokkurt skeið hefur stjórn félagsins rætt um að í tilefni afmælisins væri við hæfi að minnast afmælisins með því að leggja fjármuni til uppbyggingar mannvirkja sem efldu samfélagið enn frekar. Hjólin fóru síðan að snúast hraðar eftir fund sem annar undirritaðra átti með forsvarsmönnum USÚ þar sem óskað var eftir stuðningi til framkvæmda á íþróttamannvirkjum.</description>
Norðlenska afhendir Lionsklúbbi Hornafjarðar peningagjöf
      <description>Í stað þess að senda út jólakort hefur Norðlenska undanfarin ár styrkt félagasamtök með fjárframlögum á aðventunni. Svo er einnig í ár. Í dag, 13. desember, afhenti Reynir B. Eiríksson, framleiðslustjóri Norðlenska, forráðamönnum Líknarsjóðs Lionsklúbbs Hornafjarðar 100 þúsund króna peningagjöf frá fyrirtækinu. Afhending peningagjafarinnar fór fram í gær á Kaffihorninu. “Það er okkur hjá Norðlenska mikilvægt að geta orðið lionsmönnum á Hornafirði að liði með þessum hætti. Síðustu tvö ár höfum við afhent félagasamtökum á Akureyri og Húsavík peningagjafir í aðdraganda jóla og nú er komið að Hornafirði, þriðja byggðarlaginu þar sem Norðlenska er með starfsstöð. Okkur er kunnugt um að Lionsklúbbur Hornafjarðar stendur fyrir öflugu starfi og því vitum við að þessir fjármunir nýtast vel,” segir Reynir B. Eiríksson, framleiðslustjóri Norðlenska.</description>
Jólasveinar og kynlegir kvistir í Haukafelli
      <description>Undanfarin ár hefur Skógræktarfélag A-Skaftafellssýslu staðið fyrir fjölskyldudegi í skógræktarlandinu í Haukafelli. Þetta árið ætlum við að hittast í Haukafelli sunnudaginn 17. desember frá kl. 11-16.  Þar gefst mönnum kostur á að koma og fella sitt eigið jólatré úr skóginum. Einnig er hægt að fá nóg af birki og furugreinum til skreytinga. Þeir sem ekki hyggjast kaupa sér jólatré fá sér gjarnan göngutúr í um svæðið. Eftir útivist í Haukafellsskógi er notalegt að fá sér kakó og kökur í þjónustuhúsinu. Ekki sakar að geta þess að skammt frá Haukafelli er jólasveinabyggðin í Fláfjalli. Það er því ekki óalgengt að það sjáist skína í rauða skotthúfu inn á milli trjánna.</description>
Kirkjukórar fara í jólahlaðborð
      <description>Jólahlaðborð eru þessa dagana í boði hjá flestum veitingastöðum  þar sem borðin svigna undan kræsingunum og gefur þar að líta allskonar rétti bæði þjóðlega og nú sem aldrei fyrr allskonar framandi rétti hvern öðrum gómsætari. Kirkjukór Hofskirkju í Öræfum brá sér um fyrri helgi í jólahlaðborð á Smyrlabjörgum og fékk með sér kirkjukór Suðursveitar og Mýra. Milli þess sem fólk gæddi sé á matnum  var lagið tekið undir stjórn séra Einars á Kálfafellsstað og spiluðu Einar og Sigurgeir á Fagurhólsmýri undir á harmonikkur og síðar bættist Sigjón á Brekkubæ (Nonni) í hópinn.</description>
      <alt>Kirkjukórar fara í jólahlaðborð</alt>
Amnesty bréfamaraþon á Höfn og í Reykjavík
      <description>Sunnudaginn 10. desember, á alþjóðlega mannréttindadaginn, heldur Íslandsdeild Amnesty International bréfamaraþon á Höfn og í Reykjavík. Maraþonið felst í því að þeir sem mæta skirfa bréf til þolenda mannréttindabrota víða um heim og geta þau bréf eða kort haft áhrif á öryggi einstaklingsins sem sem er í fangelsi yfir hátíðina. Þetta er í annað skipti sem slíkt maraþon er haldið en í fyrra þá var það eingöngu haldið í Reykjavík og að sögn Júlíönnu Sveinsdóttur sem stendur fyrir þessu hér í Sveitarfélagiinu þá myndaðist mjög góð stemning í Reykjavík og voru send um 300-400 hundruð jólakort til þolenda mannréttindabrota um heim allan. Samtímis brégamaraþon á Höfn og í Reykjavík munu fara fram bréfamaraþon í Amnesty-deildum víða um heim.</description>
Opið hús hjá Skinney- Þinganes hf
      <description>Af tilefni 60 ára afmælis Skinneyjar-Þinganess hf hefur félagið ákveðið að hafa opið hús laugardaginn 9. desember milli 10 og 16. Á liðnum 60 árum hefur margt breyst, ekki síst nú síðustu árin. Uppsjávarvinnsla fyrirtækisins hefur tekið stakkaskiptum þannig að nú eru eingöngu eftirlitsstörf í vinnslunni. Þá hafa allar vinnslur félagsins verið sameinaðar undir eitt þak í Krossey. Á laugardaginn verður hægt að sjá síldarvinnslu, flatningu og pökkun á saltfiski og flökun og pökkun á ýsu. Ásamt því að skoða vinnslurnar verður gestum svo boðið upp á veitingar þar sem m.a. verður hægt að smakka afurðir úr því hráefni sem framleitt er hjá fyrirtækinu. Þá verða muna og myndasýningar og  í gangi þar sem hægt verður að sjá gamla og nýja tímann ásamt videómyndum.</description>
      <alt>Skinney-Þinganes</alt>
Jólamarkaður í Holti um helgina
      <description>Nú um helgina, nánar tiltekið á laugardaginn 9.desember verða heimilismenn á Sambýlinu á Hólabrekku með jólamarkað í Holti eins og undanfarin ár. Þar verða til sölu m.a. jólakort og margt fleira fallegt. Einnig verður boðið upp á kaffi og vöfflur. Markaðurinn verður aðeins þennan eina dag. Jólamarkaðurinn í Holti er orðinn fastur liður í aðdraganda jólanna og tilvalið að taka bíltúr í sveitina. Að sögn Önnu Egilsdóttir forstöðumanns sambýlisins þá eru heimilismenn að undirbúa jólamarkaðinn af og til allt árið og afraksturinn nú klár. Á sambýlinu búa sex manns og eru starfsmenn þar 9 þegar allir eru talir.</description>
Jólamarkaður 2006 í Miðbæ og Nýheimum.
      <description>20. markaður Markaðstorgs Hornafjarðar verður haldinn  laugardaginn 9.desember.  Ákveðið var að halda markaðinn í Miðbæ og Nýheimum þannig að rúmt verði um alla sölumenn en talsverð þrengsli voru á síðasta Jólamarkaði í Miðbæ 2005. Yfir 20 aðilar hafa þegar skráð sig fyrir söluborðum svo búast má við mikilli stemmningu. Jón bakari verður að sjálfsögðu með opið fyrir kaffi og kökur í Miðbæ en Kvennakórinn sér um veitingasölu í Nýheimum og hver veit nema þeim detti í hug að taka lagið. Við fáum  heimsóknir frá bæði Samkórnum og Barnakórnum sem ættu að koma okkur í rétta jólaskapið. Þá selja þær kvennakórskonur langflottasta dagatal landsins en það er í anda “Calender girls”.</description>
Mikið um að vera hjá Hafnarskóla á fullveldisdeginum
      <description>Í dag var mikið um að vera í skólanum. hafnarskóli hélt upp á fullveldisdaginn eins og venja er, fengu góðar gjafir og fóru út að boða í hádeginu. Elín Sigríður Harðardóttir gaf hafnarskóla jurtasafnið sitt sem á örugglega eftir að nýtast vel í skólanum þegar nemendur eru í jurtavinnu bæði á vorin og haustin. Þetta er jurtasafn sem hún tók saman þegar hún var við nám í Garðyrkjuskólanum. Lionsklúbbur Hornafjarðar færði skólanum 100.000 kr að gjöf sem nota á til bókakaupa á bókasafnið og kom sú gjöf sér einstaklega vel fyrir skólann. Það voru þeir Steini í Bjarnanesi og Sigurður Guðmundsson sem komu fyrir hönd Lions og afhentu gjöfina.</description>
Aðvörun send þegar vindur er 30m/sek
      <description>Undanfarnar vikur hefur verið algengt að heyra tilkynningar í útvarpinu um að ófært sé við Hvalnes og um Hvalnes og Þvottárskriður vegna hvassviðris eða grjóthruns, einnig að ófært sé í Öræfum og  við Lómagnúp vegna hvassviðris og stundum  sandfoks. Þrátt fyrir þessar aðvaranir eru margir sem láta þær sem vind um eyru þjóta og fara samt, sumir með þeim afleiðingum að stórskemma eða gjöreyðileggja bíla sína sem þá er ekki bótaskylt úr tryggingum, einn og einn sleppur með skrekkinn. Sigurður Guðnason lögregluvarðstjóri á Höfn segir að lögreglan hafi ekki heimild til að loka veginum sú ákvörðun verði að koma frá almannavarnarnefnd og því sendi lögreglan frá sér viðvaranir þegar vindur er kominn í 30m/sek og meira  en þessar viðvaranir hafa verið með mesta móti undanfarið.</description>
      <alt>Sigurður Guðnason</alt>
Jólatónleikar Kvennakórs Hornafjarðar
      <description>Næstkomandi miðvikudag 6. des. heldur Kvennakórinn sína árlegu jólatónleika. Tónleikarnir fara fram í Nýheimum. Að tónleikum loknum verður að venju boðið upp á kaffihlaðborð. Í Kvennakórnum eru um 30 virkir meðlimir. Svavar Sigurðsson frá Djúpavogi er stjórnandi kórsins og Jónína Einarsdóttir spilar undir. Á næsta ári verður kórinn verður 10 ára og því er stefnt að því að hafa næsta starfsár mun veglegra en venjulega. Að sögn Áslaugar Valsdóttur formanns kórsins þá stefna þær kvennakórskonur á utanlandsferð í júní á næsta ári en hvert verður farið er ekki endanlega ákveðið.</description>