Rífandi gangur hjá Þekkingarnetinu í Nýheimum
Þekkingarnet Austurlands hefur nú haft starfsemi á Hornafirði frá því 1. september síðast liðinn. Starfsmaður hefur verið í hlutastarfi og því aðeins til þjónustu í um 30 daga. Á þessum tíma hafa verið haldin námskeið um námstækni fyrir fólk í háskólanámi, námskeið í stafrænni ljósmyndun og fyrsta stigs íslenskunámskeið fyrir íbúa af erlendum uppruna sem 14 manns luku. Á Nýheimadaginn sem haldinn var 24. nóvember bauð Þekkingarnetið upp á námskeið í gerð aðventukransa og fóru 20 manns heim með krans af því námskeiði. Talsvert er um að fólk komi á skrifstofuna í Nýheimum til að velta fyrir sér möguleikum á námi og störfum og fá einstaklingsbundna ráðgjöf í þeim efnum og gaman er að geta þess að 47 einstaklingar stunda nú fjarnám á háskólastigi, allt frá grunnnámi til doktorsnáms.
Helstu verkefni í upphafi nýs árs eru enskunámskeið fyrir byrjendur sem áætlað er að fari af stað þann 10. janúar og ef fólk hefur áhuga verður boðið upp á framhaldsnámskeið. Kennarinn Bryndís Víglundsdóttir leggur áherslu á að nemendur noti enskuna í samskiptum og tileinki sér orðaforða sem nýtist á ferðalögum erlendis. Í janúar fer einnig af stað framhaldsnámskeið í íslensku, þar munu Magnhildur Gísladóttir og Davorka Basrak leiðbeina fólki af erlendum uppruna með áframhaldandi nám.
Í febrúar er ætlunin að fara af stað með tölvunámskeið fyrir byrjendur og bjóða síðan upp á framhaldsnámskeið í mars. Kennarinn Helgi Georgsson leggur áherslu á að fólk læri að nýta sér tölvuna til samskipta, upplýsingaöflunar á netinu og til annarra persónulegra nota og afþreyingar.
Einnig hefur fólk verið duglegt að stinga upp á áhugaverðum námskeiðum eins og námskeið í fluguhnýtingum, í fjölþjóðlegri matargerð og margt fleira. Í upphafi árs 2007 verður námsvísir vorannar borinn í hvert hús á Austurlandi og þá getur fólk séð úr hverju er að velja. Þeir sem hafa áhuga á einhverjum námskeiðum geta skráð sig á heimasíðu Þekkingarnetsins www.fna.is, hringt í síma 478-1595 í Nýheimum eða sent tölvupóst á ragnhild@eldhorn.is
Að lokum vil ég, fyrir hönd ÞNA, þakka Hornfirðingum fyrir frábærar viðtökur og hvatningu í upphafi starfseminnar og hlakka til að vinna áfram að framgangi menntunar á staðnum.
Ragnhildur Jónsdóttir
Verkefnisstjóri,
Náms-og starfsráðgjafi
ÞNA.





Skrifa athugasemd