Desember
Ari Þorsteinsson eftir ferðina í Haukafell
Ari Þorsteinsson eftir ferðina í Haukafell
Sumir skreyta meira en aðrir, Ari ætlar ekki að láta “Súkkuna” fara í jólaköttinn. (@RE)

20.12.2006 Desember

Vel heppnaður Fjölskyldudagur í Haukafelli

Fjölskyldudagurinn í Haukafelli var haldin nú á sunnudaginn og tókst hann í alla staði vel, enda hefði veðrið ekki getað verið betra, létt frost, snjóföl og bjart. Saman nutu útiverunnar, börn, hundar, jólasveinar, foreldrar, afar og ömmur. Kakóið hjá Lucy og kökurnar sem Jón bakari gaf okkur runnu ljúft niður. Við þökkum öllum þeim sem fjölmörgu sem komu í Haukafell fyrir komuna. Þeir sem lögðu okkur lið með vinnuframlagi eða gáfu okkur efni fá einnig bestu þakkir. Ágóðinn af sölu jólatrjánna verður notaður til kaupa á plöntum, sem fella má sem jólatré eftir nokkur ár og til vegaframkvæmda, en til stendur að brúa ána og klára veginn í vor.

Þegar því verður lokið verður öllum fært í Haukafell.
Verið alltaf velkomin í Haukafell

Skógræktarfélagið


Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica