Þrír ráðherrar og þingmaður í heimsókn
Miðvikudaginn síðasta fengu Hornfirðingar þrjá ráðherra og einn þingmann í heimsókn. Þetta voru þau Jón Sigurðsson ,Jónína Bjartmarz , Guðni Ágústsson og Hjálmar Árnason. Farið var með þau í Nýheima til kynningar og fræðslu,sem og humarhótelið. Um kvöldið var haldinn fundur bæði félagsfundur og opinn. Þar var mikið spurt um málefni sem brenna á fólki hér,enda tækifærið gott. Tímasetningin var fín því að Framsóknarflokkurinn á 90 ára afmæli um þessar mundir og vel við hæfi að fá forystuna hingað frekar enn baka köku,við borðum þær bara um jólin.
Fundurinn var ágætlega sóttur þó stutt væri til jóla.Góð vísbending um að við Hornfirðingar missum okkur ekki alveg í jólastressinu.





Skrifa athugasemd