Sandbakkamyndin vinsælust
Nú er komið á sjötta ár frá því Brynjúlfur Brynjólfsson á Höfn stofnaði BB prentun og myndver og hefur starfsemin aukist með hverju árinu. Fréttamaður vefsins leit nýlega inn í prent- og myndverið til Brynjúlfs og Sigrúnar konu hans. Þau voru önnum kafin við að afgreiða pantanir á myndum og var greinilega nóg að gera. Brynjúlfur segir að fyrsta árið hafi prentun jólakorta verið stærsta verkefnið en eftir því sem tækjakostur hefur batnað og hefur fjölbreytni verkefna aukist. Meðal þess sem BB framleiðir eru glæsilegar ,,strigamyndir", myndir úr Hornafirði þar sem náttúran skartar sínu fegursta og er Sandbakkamyndin þeirra vinsælust, einnig eru til sölu margskonar fuglamyndir, mjög fallegar. Hægt er að fá strigamyndirnar á blindrömmum í mörgum stærðum allt frá 18x18 cm uppí 120x125 cm. Brynjúlfur segir sölu jólakorta ganga vel og voru prentuð um 12000 kort á síðasta ári og í ár lítur út fyrir góða sölu og er markaðurinn farinn að teygja sig til fleiri staða á landinu. Fólk getur fengið kort með sínum eigin myndum og texta. Það nýjasta fyrir þessi jól eru myndskreyttir gjafapokar og bókamerki sem Sigrún hannaði. Fyrir jólin er mikið að gera við gerð dagatala einkum persónulegra dagatala.
Tæki til að færa efni af myndböndum yfir á DVD er að koma hér í hús og verður sú þjónusta tilbúin eftir áramótin. Þjónusta við fyrirtæki og einstaklinga hefur aukist ár frá ári með prentun á skýrslum, nafnspjöldum, fréttabréfum og nánast öllu sem fólk og fyrirtæki þurfa að fá prentað. Brynjúlfur og Sigrún eiga hrós skilið fyrir framtak sitt og óskar vefurinn þeim góðs gengis í framtíðinni og að fyrirtækið, sem nú er á Bugðuleiru 6, haldi áfram að vaxa og dafna.





Skrifa athugasemd