Desember
STH Gjöf
STH Gjöf
Árni Þorvaldsson forseti bæjarstjórnar tekur á móti gjöfinni frá Gunnari Ásgeirssyni stjórnarformanns Skinneyjar-Þinganess (mynd STH)

16.12.2006 Desember

Skinney-Þinganes gefur 60 milljónir til byggingar knattspyrnuhúss á Höfn

Í tilefni 60 ára afmælis Skinneyjar-Þinganess hf hefur félagið lýst yfir vilja til að koma að byggingu knattspyrnuhúss á Höfn með a.m.k. 60 milljóna króna framlagi. Í gær afhenti Gunnar Ásgeirsson stjórnarformaður Skinneyjar-Þinganess hf Árna Rúnari Þorvaldssyni, forseta bæjarstjórnar, bréf þar að lútandi. Í bréfinu kemur fram að á á þessu ári fagnar Skinney - Þinganes hf 60 ára afmæli. Um nokkurt skeið hefur stjórn félagsins rætt um að í tilefni afmælisins væri við hæfi að minnast afmælisins með því að leggja fjármuni til uppbyggingar mannvirkja sem efldu samfélagið enn frekar. Hjólin fóru síðan að snúast hraðar eftir fund sem annar undirritaðra átti með forsvarsmönnum USÚ þar sem óskað var eftir stuðningi til framkvæmda á íþróttamannvirkjum.

Stjórn félagsins var sammála um að þarna væri kominn kjörinn vettvangur til þess að minnast afmælisins. Stjórnin ákvað að hafa bein samskipti við forsvarsmenn Sveitarfélagsins Hornafjarðar um þennan stuðning því áhugi var fyrir hendi hjá stjórninni að styðja mjög myndarlega við uppbygginguna. Í þeim viðræðum sem í hönd fóru kom upp hugmynd um að Sveitarfélagið Hornafjörður og Skinney - Þinganes hf tækju höndum saman og byggðu upp knattspyrnuhús í líkingu við það sem reist var við Kaplakrika í Hafnarfirði.

Í bréfinu lýsa undirritaðir því yfir, fyrir hönd stjórnar Skinneyjar - Þinganess hf, að félagið er tilbúið að leggja til þessa verkefnis að minnsta kosti eina miljón króna fyrir hvert ár í sögu félagsins. Undir bréfið ritar Aðalsteinn Ingólfsson framkvæmdastjóri og Gunnar Ásgeirsson, stjórnarformaður.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica