Jólasveinar og kynlegir kvistir í Haukafelli
Undanfarin ár hefur Skógræktarfélag A-Skaftafellssýslu staðið fyrir fjölskyldudegi í skógræktarlandinu í Haukafelli. Þetta árið ætlum við að hittast í Haukafelli sunnudaginn 17. desember frá kl. 11-16. Þar gefst mönnum kostur á að koma og fella sitt eigið jólatré úr skóginum. Einnig er hægt að fá nóg af birki og furugreinum til skreytinga. Þeir sem ekki hyggjast kaupa sér jólatré fá sér gjarnan göngutúr í um svæðið. Eftir útivist í Haukafellsskógi er notalegt að fá sér kakó og kökur í þjónustuhúsinu. Ekki sakar að geta þess að skammt frá Haukafelli er jólasveinabyggðin í Fláfjalli. Það er því ekki óalgengt að það sjáist skína í rauða skotthúfu inn á milli trjánna.
Byrjað var að planta í Haukafelli árið 1985 og þar er nú orðin gróskumikill skógur sem við erum að grisja smám saman. Skógræktarfélagið er einnig með skógræktarsvæði við Drápskletta á Höfn. Þar hafa grunnskólar sveitarfélagsins, ýmis fyrirtæki og klúbbar ásamt félögum í Skógræktarfélaginu gróðursett síðan árið 2003.





Skrifa athugasemd