Desember
Kirkjukórar fara í jólahlaðborð
Kirkjukórar fara í jólahlaðborð
Kirkjukórar fara í jólahlaðborð
Mynd 2 af 4
1 2 3 4

11.12.2006 Desember

Kirkjukórar fara í jólahlaðborð

Jólahlaðborð eru þessa dagana í boði hjá flestum veitingastöðum þar sem borðin svigna undan kræsingunum og gefur þar að líta allskonar rétti bæði þjóðlega og nú sem aldrei fyrr allskonar framandi rétti hvern öðrum gómsætari. Kirkjukór Hofskirkju í Öræfum brá sér um fyrri helgi í jólahlaðborð á Smyrlabjörgum og fékk með sér kirkjukór Suðursveitar og Mýra. Milli þess sem fólk gæddi sé á matnum var lagið tekið undir stjórn séra Einars á Kálfafellsstað og spiluðu Einar og Sigurgeir á Fagurhólsmýri undir á harmonikkur og síðar bættist Sigjón á Brekkubæ (Nonni) í hópinn.

Tilefni þess að kórinn fór þessa ferð var sú að kirkjukór Hofskirkju barst gjöf í minningu um systkinin Pál og Kristínu Stefáns-börn frá Hnappavöllum og var gjöfin hugsuð til þess að kórinn fengi tækifæri til að fara saman út að borða og til að uppfylla þá ósk var ákveðið að fara í jólahlaðborð á Smyrlabjörgum. Páll og Kristín höfðu bæði sungið í kirkjukórnum í áratugi og voru kórfélagar þeirra sem núna eru í kórnum.

Að sögn kórfélaga var þetta mjög skemmtilegt og notalegt kvöld, allir skemmtu sér vel og maturinn var alveg meiriháttar.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica