Opið hús hjá Skinney- Þinganes hf
Af tilefni 60 ára afmælis Skinneyjar-Þinganess hf hefur félagið ákveðið að hafa opið hús laugardaginn 9. desember milli 10 og 16. Á liðnum 60 árum hefur margt breyst, ekki síst nú síðustu árin. Uppsjávarvinnsla fyrirtækisins hefur tekið stakkaskiptum þannig að nú eru eingöngu eftirlitsstörf í vinnslunni. Þá hafa allar vinnslur félagsins verið sameinaðar undir eitt þak í Krossey. Á laugardaginn verður hægt að sjá síldarvinnslu, flatningu og pökkun á saltfiski og flökun og pökkun á ýsu. Ásamt því að skoða vinnslurnar verður gestum svo boðið upp á veitingar þar sem m.a. verður hægt að smakka afurðir úr því hráefni sem framleitt er hjá fyrirtækinu. Þá verða muna og myndasýningar og í gangi þar sem hægt verður að sjá gamla og nýja tímann ásamt videómyndum.
Tónskólinn mun svo sjá um tónlistaratriði, þar sem nemendur skólans koma fram á heila og hálfa tímanum á meðan að opið er.
Allir velkomnir




Skrifa athugasemd