Jólamarkaður í Holti um helgina
Nú um helgina, nánar tiltekið á laugardaginn 9. desember verða heimilismenn á Sambýlinu á Hólabrekku með jólamarkað í Holti eins og undanfarin ár. Þar verða til sölu m.a. jólakort og margt fleira fallegt. Einnig verður boðið upp á kaffi og vöfflur. Markaðurinn verður aðeins þennan eina dag. Jólamarkaðurinn í Holti er orðinn fastur liður í aðdraganda jólanna og tilvalið að taka bíltúr í sveitina. Að sögn Önnu Egilsdóttir forstöðumanns sambýlisins þá eru heimilismenn að undirbúa jólamarkaðinn af og til allt árið og afraksturinn nú klár. Á sambýlinu búa sex manns og eru starfsmenn þar níu þegar allir eru taldir.
Jólamarkaðurinn stendur frá kl. 14 til kl. 17.





Skrifa athugasemd