Jólamarkaður 2006 í Miðbæ og Nýheimum.
20. markaður Markaðstorgs Hornafjarðar verður haldinn laugardaginn 9.desember. Ákveðið var að halda markaðinn í Miðbæ og Nýheimum þannig að rúmt verði um alla sölumenn en talsverð þrengsli voru á síðasta Jólamarkaði í Miðbæ 2005. Yfir 20 aðilar hafa þegar skráð sig fyrir söluborðum svo búast má við mikilli stemmningu. Jón bakari verður að sjálfsögðu með opið fyrir kaffi og kökur í Miðbæ en Kvennakórinn sér um veitingasölu í Nýheimum og hver veit nema þeim detti í hug að taka lagið. Við fáum heimsóknir frá bæði Samkórnum og Barnakórnum sem ættu að koma okkur í rétta jólaskapið. Þá selja þær kvennakórskonur langflottasta dagatal landsins en það er í anda ?Calender girls?.
Til sölu verða allskyns listmunir, gler og tré , handavinna og föndur. Eins verður seldur matur úr matarkistunni Hornafirði s.s. jóla- endur, reyktur áll, ný og reykt jöklableikja, bakkelsi frá Kvenfélaginu Ósk í Suðursveit, kvennakórnum og 9. bekk í Heppuskóla. Ferskur fiskur,saltfiskur,síld,skata og humar, heimalöguð chilisulta og mango chutney.
Menningarmiðstöðin stendur fyrir bókamarkaði og bangsasölu og Saga Hafnar verður seld á sérstöku jólatilboði.
Allar verslanir í Miðbæ taka vel á móti fólki með spennandi tilboðum hvort sem er í mat- eða gjafavöru.
Markaðurinn opnar klukkan 11:00 og lýkur um fjögur leitið.





Skrifa athugasemd