Aðvörun send þegar vindur er 30m/sek
Undanfarnar vikur hefur verið algengt að heyra tilkynningar í útvarpinu um að ófært sé við Hvalnes og um Hvalnes og Þvottárskriður vegna hvassviðris eða grjóthruns, einnig að ófært sé í Öræfum og við Lómagnúp vegna hvassviðris og stundum sandfoks. Þrátt fyrir þessar aðvaranir eru margir sem láta þær sem vind um eyru þjóta og fara samt, sumir með þeim afleiðingum að stórskemma eða gjöreyðileggja bíla sína sem þá er ekki bótaskylt úr tryggingum, einn og einn sleppur með skrekkinn. Sigurður Guðnason lögregluvarðstjóri á Höfn segir að lögreglan hafi ekki heimild til að loka veginum sú ákvörðun verði að koma frá almannavarnarnefnd og því sendi lögreglan frá sér viðvaranir þegar vindur er kominn í 30m/sek og meira en þessar viðvaranir hafa verið með mesta móti undanfarið.
Sigurður segir fremur rólegt hjá lögreglunni hér og engin stórmál komið upp. Lögreglan var nýlega með skoðunarátak þar sem höfð var afskipti af 30 óskoðuðum og ótryggðum bílum og hafa þeir nú nánast allir skilað sér í skoðunarstöðina. Á næstunni mun lögreglan kanna ljósabúnað bifreiða og notkun bílbelta.





Skrifa athugasemd