Fjölskyldudagurinn í Haukafelli var haldin nú á sunnudaginn og tókst hann í alla staði vel, enda hefði veðrið ekki getað verið betra, létt frost, snjóföl og bjart. Saman nutu útiverunnar, börn, hundar, jólasveinar, foreldrar, afar og ömmur. Kakóið hjá Lucy og kökurnar sem Jón bakari gaf okkur runnu ljúft niður. Við þökkum öllum þeim sem fjölmörgu sem komu í Haukafell fyrir komuna. Þeir sem lögðu okkur lið með vinnuframlagi eða gáfu okkur efni fá einnig bestu þakkir. Ágóðinn af sölu jólatrjánna verður notaður til kaupa á plöntum, sem fella má sem jólatré eftir nokkur ár og til vegaframkvæmda, en til stendur að brúa ána og klára veginn í vor.
Lesa meira