Þórhildur dettur í lukkupott
Oft á tíðum tekur fólk þátt í ýmis konar leikjum. Þórhildur Rán Torfadóttir nemandi í FAS tók þátt í einum slíkum sem Office1 stóð fyrir í haust. Hún var svo heppin að hljóta fyrsta vinning í þeim leik. Það má segja að það hafi ekki einungis verið hún sem datt í lukkupottinn. Auk hennar fengu nemendafélag skólans og svo skólinn sjálfur gjöf. Þórhildur fær að gjöf tölvu, fjölnota prentara, myndavél og skó frá Skór.is. Nemendafélag FAS fær fartölvu og myndavél og skólinn skjávarpa og sýningartjald. Við óskum Þórhildi til hamingju með vinninginn um leið og við þökkum fyrir okkur. Þessar gjafir munu nýtast vel.
Meðfylgjandi mynd var tekin þegar Þórhildur afhenti formanni nemendafélagsins og skólameistara gjafirnar.
www.fas.is





Skrifa athugasemd