Nóvember
Drekinn, bíll björgunarsveitarinnar Kára
Drekinn, bíll björgunarsveitarinnar Kára

28.11.2006 Nóvember

Svo hvasst að drekinn færðist til undan mestu vindhviðunum

Mikið hvassviðri var í Öræfasveit í gær og um kl.21.30 mældust mestu vindhviðurnar 68 m/s framan við Svínafell og 60m við Kotá. Ólafur Sigurðsson á Svínafelli fór á Drekanum að huga að húsbíl sem sást til á austurleið en sú athugun bar ekki árangur og sagði Ólafur að hætt hefði verið frekari athugun um hann þar sem ekki sáust nein merki þess að hann hefði lent í ógöngum á hvassasta svæðinu. Á leiðinni frá Fagurhólsmýri að Freysnesi var flutningabíll (pakkabíllinn) í fylgd drekans og komst hann slysalaust þangað en bílstjórinn sagði að þetta hefði verið skelfileg lífsreynsla og ótrúlegt að komast þetta. Svo hvasst var að drekinn færðist til undan mestu vindhviðunum og vegstikur lágu flatar. Anna María Ragnarsdóttir í Freysnesi sagði að ekki væri nema 47m í mestu gusunum hjá þeim og þar biðu nokkrir bílar þess að komast áfram. Ekki er vitað til að tjón hafi orðið á eignum í veðurofsanum eða að bílar hafi skemmst.

Skólahald féll niður í Hofgarði í gær. Að sögn Veðurstofunnar þá veðurhorfur næsta sólarhringinn minnkandi norðaustanátt og rigning, austan 8-13 m/s síðdegis. Suðlægari í kvöld. Suðaustan 5-10 á morgun. Hiti 3 til 8 stig.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica