Nóvember
Halldór Kr. Sigurðsson
Halldór Kr. Sigurðsson
Halldór Kr. Sigurðsson

27.11.2006 Nóvember

Lærum að búa til heimatilbúið konfekt

Konfektnámskeið verður haldið í Mánagarði næstu helgi nánar tiltekið á laugardaginn 2.des Námskeiðið verður í umsjón Halldórs Kr. Sigurðssonar bakara og konditormeistara í samvinnu við Húsamiðjuna á Höfn. Að sögn Halldórs þá ætlar hann að koma hingað austur og kenna listina að búa til konfekt, hann segir að ef réttu handtökin eru notuð þá sé auðvelt fyrir alla að búa til dýrindis konfekt. Á námskeiðinu sem er um 2 tímar verður farið verður yfir allt sem að snýr að konfektgerð og hentar námskeiðið fólki á öllum aldri. Innifalið er allt hráefni en námskeiðsgjaldi er stillt upp í hóf og kostar aðeins 2500 krónur á mann. Ekki spillir fyrir að þátttakendur taka með sér a.m.k. 20-30 mola heim. Allir sem að mæta á námskeiðið fá 25% afslátt af öllum búsáhöldum í Húsasmiðjunni hér á Höfn sem og í öðrum Húsamiðjuverslunum. Halldór sem haldið hefur slík námskeið síðustu 9 árin segir að námsskeið sem þetta sé mjög vinsælt enda jafnast ekkert á við heimatilbúið konfekt á jólahátíðinni.

Námskeiðið hefst kl.10 laugardaginn 2. desember og er æskilegt að þátttakendur taki með sér kökukefli og ílát undir afrakstur námskeiðsins. Hægt að skrá sig með því að senda tölvupóst á konfekt@husa.is eða hringja í Húsasmiðjuna í síma 525 3000 (frá kl.09-16).

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica