Byrjað á nýrri brú yfir Staðará í Suðursveit
Brúarvinnuflokkur Vegagerðarinnar sem unnið hefur að viðhaldi á Jökulsárbrú á Breiðamerkursandi hefur flutt sig austur að Staðará í Suðursveit þar sem byrjað verður á byggingu nýrrar brúar. Jón Bjarnason hjá Vegagerðinni segir að unnið verði við brúarsmíðina til 15. desember og svo byrjað aftur í febrúar. Jón á von á að ný brú komi á Smyrlabjargará á næsta ári og þar með verður tveim einbreiðum brúm færra í sýslunni, nóg er eftir af þeim samt. Brúarvinnuflokkurinn, sem er frá Vík, hefur unnið við Jökulsá frá því í sumar og m.a. skipt um dekk á brúnni en ekki hefur viðrað til að sandblása brúna og vírana þar sem visst rakastig þarf að vera til að hægt sé að sandblása svo þær framkvæmdir verða að bíða næsta sumars.
Samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofunni þá eru veðurhorfur næsta sólarhringinn fyrir Suðausturlandið er vaxandi norðaustanátt, 18-25 m/s og slydda eða rigning eftir hádegi. Lægir talsvert á morgun. Hiti 1 til 8 stig.





Skrifa athugasemd