Gaf Rithöfundasambandinu húseignin í Suðursveit
Föstudaginn 13. október sl. fór fram stutt en hátíðleg athöfn þar sem Guðrún Sveinsdóttir, nú búsett hér á Höfn, færði Rithöfundasambandi Íslands að gjöf húseignina að Sléttaleiti í Suðursveit. Um er að ræða nýlegt sumarhús reist þar sem bærinn stóð áður og er gjöfin til minningar um foreldra Guðrúnar, Auðbjörgu og Svein Mikael, síðustu ábúendur að Sléttaleiti, svo og einkabróður Guðrúnar, Þorgils Bjarna. Einnig vill hún með gjöfinni heiðra minningu frænda síns, Einars Braga, skálds og rithöfundar, en Einar var á unglingsárum við sumarstörf hjá frændfólki sínu að Sléttaleiti. Í húsinu er að finna öll ritverk Einars og ýmisleg gögn um höfundarverk hans að auki. Þá sakar ekki að geta þess að Sléttaleiti er í næsta nágrenni við Hala í Suðursveit, en þar hefur nú risið Þórbergssetur sem er ætlað að sýna minningu og höfundarverki Þórbergs Þórðarsonar rækt.
Það má því nærri geta að þessi höfðinglega gjöf snertir margar strengi í hjörtum íslenskra rithöfunda sem hugsa sér gott til glóðarinnar að eflast til ritstarfa þar eystra.





Skrifa athugasemd