Nóvember
Séð frá Leiðarhöfða
Séð frá Leiðarhöfða
Séð frá Leiðarhöfða

20.11.2006 Nóvember

Jákvætt að fasteignum á söluskrá hefur fækkað

Þetta er allt frekar jákvætt og fasteignum á söluskrá hjá okkur hefur fækkað´´ sagði Snorri Snorrason hjá Fasteignasölunni Hrauni á Hornafirði þegar fréttamaður spurði hann um fasteignasölu á svæðinu. Það hefur verið heldur meiri sala fasteigna á þessu ári en var sl.ár og vísbendingar eru um að verð fasteigna fari hækkandi. Snorri segir að fleiri hafi samband við fasteignasöluna en áður og mikið er um að fólk hringi til að spyrja um hvað staðurinn hafi uppá að bjóða svo sem hvað atvinnu varðar, um leikskólapláss og hvaða skólanám sé í boði og er ánægjulegt að geta svarað þessum þáttum jákvæðum. Hvað leigumarkaðinn varðar er eitthvað af litlum íbúðum á lausu en engin íbúðarhús.

Flestir taka lán frá íbúðalánasjóði, þar er hámarkslán 17 mkr. sem í flestum tilfellum dugir kaupandanum a.m.k. meðan fasteignaverð hækkar ekki meira.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica