Nóvember
Hali í Suðusveit
Hali í Suðusveit
Hali í Suðusveit
Mynd 2 af 2
1 2

16.11.2006 Nóvember

Hægt er að baða sig í fiskikari í næsta nágrenni við gistihúsin

Á Hala er nú hægt að panta gistingu í sérhúsnæði. Um er að ræða tvö einbýlishús með góðri eldunaraðstöðu og setustofu. Yfir sumartímann er mikið um að vera og panta þarf gistingu með góðum fyrirvara. Í báðum húsunum geta dvalið 26 - 28 manns, í vestra húsi 14 - 16 manns og eystra húsi 12 manns. Fyrir utan háannatímann þ.e. frá 1. september til 1. júní er hægt að koma og dvelja á Hala yfir helgi eða í lengri tíma. Á það við um hópa, fjölskyldur, fræðimenn eða skólahópa. Á vegum Þórbergsseturs er hægt að panta sérstaka dagskrá sem hentar hverjum og einum. Sem dæmi má nefna gönguferð að kvöldlagi og stjörnuskoðun, upplestur úr verkum Þórbergs eða efni úr Suðursveit, gönguferðir úti í náttúrunni, ratleikir, skoða fiskeldi og ála, hátíðarkvöldverður í Þórbergssetri o.fl.

Jarðhiti hefur fundist við Hala og hægt er að baða sig í heitum potti ( fiskikari) í næsta nágrenni við gistihúsin. Frekari upplýsingar gefur Þorbjörg Arnórsdóttir í síma 867 2900 og einnig er frekari fróðleikur um Þórbergssetur á vefnum thorbergur.is

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica