Nóvember
Þyrlur Landhelgisgæslunnar á Hornafjarðarflugvelli
Þyrlur Landhelgisgæslunnar á Hornafjarðarflugvelli
Þyrlur Landhelgisgæslunnar á Hornafjarðarflugvelli
Mynd 1 af 4
1 2 3 4

14.11.2006 Nóvember

Þyrlurnar í viðbragðsstöðu á Hornafjarðarflugvelli

Báðar stóru þyrlur Landhelgisgæslunnar lentu á Hornfjarðarflugvelli í morgun til að vera í viðbragðsstöðu vegna erlends flutningaskips sem á í erfiðleikum vegna bilunar í aðalvél skipsins. Skipið er statt um 100 sjómílur suðaustur af landinu og er vindhraði þar um 25 til 30 metrar og mikil ölduhæð. Fram kom á fréttavef Vísis að annað erlent flutningaskip er komið á vettvang og veitir bilaða skipinu skjól eftir föngum. Skipstjóri á bilaða skipinu er í stöðugu sambandi við Landhelgisgæsluna, sem fylgist þannig með framvindu mála. Átta menn eru í áhöfn skipsins. Búist er við að Fokker Landhelgisgæslunnar lendi á Hornafjarðarflugvelli um hádegisbilið.


TF Líf lenti um 07:30 og seinni þyrlan hálftíma síðar. Í áhöfn á TF Líf eru 6 manns og 5 manns á hinni.
Á Höfn er norðan 9 m/s og 2ja gráðu hiti.
Búist er við að Fokker Landhelgisgæslunnar lendi á Hornafjarðarflugvelli um hádegisbilið.


Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica