Nóvember
Þrúðmar Sigurðsson
Þrúðmar Sigurðsson
Þrúðmar Sigurðsson með mynd af nýja útfallinu í Svínafellsjökli
Mynd 1 af 3
1 2 3

14.11.2006 Nóvember

Nýtt útfall úr Svínafellsjökli eykur vatn í Hornafjarðarfljóti

Myndast hefur útfall úr Svínafellsjökli norðan Svínafells í Nesjum og við það eykst vatn í Hornafjarðarfljóti. Nýja útfallið veldur því að nú fer hluti af austurfljótunum, sem renna úr jöklinum austan Svínafells, í suðurfljót norðan við Svínafell og hefur vatnsmagn í suðurfljótum aukist mikið. Það er umtalsvert magn vatns sem rennur þarna segir Þrúðmar Sigurðsson í Hoffelli, þess gætir verulega þarna þegar lítið er í fljótunum því það virðist fara nokkuð jafn mikið hvort sem það er mikið eða lítið rennsli. Þetta er nýtt útfall undan jöklinum vegna bráðnunar og minnkunar jökulsins. Við þessa breytingu var mun betra að komast yfir fljótin framan við Svínafell í nokkra daga en eftir rigningarnar um daginn urðu fljótin sjómikil svo bóndinn í Svínafelli varð að nota hjólabát sinn til að komast yfir þau. Þetta segir okkur að sama vatnsmagnið er enn í gamla farveginum þó þessi kvísl fari þarna vestur fyrir innan og í suðurfljótin. Að óbreyttum aðstæðum er þessi nýja kvísl komin til að vera og þetta vatn kemur greinilega undan jöklinum.

Um aldamótin 1900 lá jökullinn á Öldutanga og yfir Svínafellstanga og segir Þrúðmar að á þessu tímabili hafi Svínafellsjökull hopað um tæpa 4 km. Núna kemur þetta útfall undan jöklinum sem er töluvert hár þarna á þessu svæði en snarlækkar svo inna til, það mikið að þetta skarð sem útfallið kemur úr er um 5 metrum lægra en gamla útfallið var. Virðist vera klettahryggur undir því og þarna eru nú komin vatnaskil þar sem kvísl rennur til norðurs í nýja útfallið en hin kvíslin fer gömlu leiðina, verulegt vatnsmagn er því í suðurfljótum.

Mikil umræða er um hvað skuli gera og kemur helst tvennt greina þ.e.loka skarðinu á kletta hryggnum þar sem nýja útfallið kemur sem er vel gerlegt en kostar töluverða peninga , verði það ekki gert þarf að byggja varnargarða til að koma í veg fyrir að fljótin leggi undir sig mikið og vel gróið landsvæði.

Ekki er búið að kanna hvernig er undir jöklinum við útfallið og ef skarðinu yrði lokað hvort þá gæti ekki alveg komið nýtt útfall annarsstaðar. Stíflugarður þar þyrfti a.m.k. að vera 10 m hár. Þrúðmar segir að til standi að koma með íssjá og reyna að kanna botn jökulsins og ætti þá að verða auðveldara að sjá hvaða leið verður farin til að hemja fljótin.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica